08.03.1933
Neðri deild: 19. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2738 í B-deild Alþingistíðinda. (4474)

59. mál, stjórnarskipunarlög

Fors.- og fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson):

Hv. 2. þm. Reykv. hafði það eftir mér, að það væri ekki mest um vert, að stjskrfrv. næði fram að ganga á þessu þingi. En þetta er ekki rétt haft eftir. Ég sagði, að ef svo færi, að frv. yrði ekki samþ. á þessu þingi, þá mætti athuga, með hvaða hætti væri unnt að greiða sem bezt fyrir málinu til næsta þings, og væri stj. til þess vel treystandi.

Út af ummælum hv. 3. þm. Reykv. um afstöðu Sjálfstfl. til stj. skal ég láta í ljós undrun mína yfir því, ef Sjálfstfl. ætlar nú að fara að spyrna fæti við stj., eftir að hún hefir borið fram frv. í stjskr.málinu, sem flokkurinn telur sig geta við unað. Annars get ég ekki að því gert, þó að þeir, sem studdu þetta mál í fyrra, kippi nú að sér hendinni.

Ég vil svo leyfa mér að stinga upp á því, að kosin verði sérstök sjö manna nefnd í þetta mál.