16.05.1933
Neðri deild: 75. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2745 í B-deild Alþingistíðinda. (4488)

59. mál, stjórnarskipunarlög

Frsm. meiri hl. (Bergur Jónsson):

Að gefnu tilefni, út af ummælum, sem fram hafa komið bæði í blöðum og eins hér á þingi, vil ég gera grein fyrir því, hvers vegna stjskrn. hefir ekki lokið störfum sínum fyrr en nú og hvers vegna hún hefir ekki haldið fleiri fundi. Það er yfirleitt svo um lausanefndir sem þessa, sem svo margir eru í og fundartími ekki fastákveðinn, að mjög erfitt er að halda fundi, vegna þess að margir nefndarmanna eiga jafnframt sæti í fastanefndum og öðrum lausanefndum, og því hættir mjög við, að fundartími lausan, rekist á fundartíma hinna nefndanna. Ég hefi þrásinnis reynt að kalla saman fund, en það hefir alltaf strandað á því, að 2 eða 3 nm. voru fjarverandi. Auk þess var ég sjálfur veikur um nokkurra vikna skeið; samt boðaði ég þá einu sinni til fundar, en á fundinn komu aðeins 3 nm. auk mín. Ég get því ekki fallizt á, að nokkurri vanrækslu sé til að dreifa frá minni hálfu, og það er líka alrangt, sem sjá hefir mátt í blöðunum, að það hafi verið samkv. vilja okkar framsóknarmanna, að afgreiðsla málsins hefir dregizt. Það eru nú reyndar komin fram 3 nál., en eins og tekið er fram í okkar nál., þá hefir n. aldrei klofnað algerlega eða formlega. Á síðasta fundi n. var málið mikið rætt, en þar eð annar sjálfstæðismaðurinn, hv. þm. G.-K., var forfallaður vegna veikinda, óskuðum við eftir, að því væri frestað um einn dag að taka ákvarðanir, en hv. 2. þm. Reykv. gaf strax út nál. og sjálfstæðismenn á eftir, og var þá eigi annað fyrir oss að gera. Báðir minni hl., sjálfstæðismenn og jafnaðarmaðurinn, vilja ganga að þingmannatölunni óbreyttri, en bera hinsvegar fram brtt. um önnur atriði, ekki stórvægilegar, en meiri hl. hefir lagt til, að tala uppbótarsætanna sé lækkuð um 2, úr 12 niður í 10.

Ég ætla nú fyrst að snúa mér að brtt. þeim, sem fram hafa komið frá minni hl. Þá er fyrst 1. minni hl., hv. 2. þm. Reykv. Ég tel fyrir mitt leyti — en ekki er ákveðið um aðra í meiri hl. —, að ég geti samþ. stafliðina a. og c., um að varaþingmenn séu kosnir um leið, en aftur á móti er ég ekki að svo stöddu viss um, að ég geti fallizt á b-liðinn, þar sem farið er fram á, að komið sé á uppbótarlandskjöri, þar sem kjósendur ráði sjálfir, hvort þeir kjósa eftir landslistanum eða í kjördæmum. Ég held, að það gæti haft leiðinlegar afleiðingar. Því að það getur komið fyrir, að kjósendur í einhverju kjördæmi snúi sér svo að segja eingöngu að landslistanum, og þá kæmust frambjóðendur í kjördæmunum að á óhæfilega og óeðlilega lágri atkvæðatölu. Hinsvegar tel ég frekar, að ég geti gengið inn á 2. brtt. hv. 2. minni hl., um að fella niður úr stjórnarskránni ákvæðið um það, hvernig úthluta skuli uppbótarsætunum. Í frv. eins og það liggur nú fyrir er gert ráð fyrir, að sá hljóti uppbótarsæti, sem hlutfallslega hæstu atkvæðatölu hefir fengið í kjördæmi. Ég held, að það geti komið illa niður, því að þó að þeir séu að nokkru leyti uppbótarmenn fyrir sinn flokk, þá munu þeir jafnframt líta á sig sem fulltrúa þess kjördæmis, sem þeir hafa boðið sig fram i, og kæmi þá til þess. ef fylgja skal ákvæðinu um hlutfallslega hæsta manninn, að smákjördæmi eins og Strandasýsla og Seyðisfjörður gætu fengið fleiri en 2 þm. Ég held, að af því að þetta er nýtt fyrirkomulag, þá sé varlegra að ákveða ekki reglurnar um aðferðina við þetta í stjskr. sjálfri. Reynslan ein sker úr því, hvað er hagfelldast í þessum efnum, og ef fyrsta tilraunin fullnægir ekki svo að breyta þurfi, þá er afartafsamt og erfitt að gera til þess stjskr.breyt. með öllum þeim umbúðum, sem utan um hana eru, en aftur á móti gæti Alþingi annars breytt því með almennum lögum. Í þessu sambandi vil ég benda á, að tillögur Framsfl. í fyrra fóru einmitt fram á, að aðferðin væri ekki ákveðin í stjskr.

Að því er snertir till. hv. 1. minni hl. um að hafa landskjörsfyrirkomulag á úthlutun uppbótarsætanna. Þá hefi ég bent á gallana við það. Betra væri að hafa um það skyldukjör bæði á landslista og frambjóðanda kjördæmis, því að þá kæmi bæði til flokksfylgis og líka persónulegs fylgis við frambjóðanda. A-liðnum í 1. brtt. 2. minni hl., um að ákveðin kjördæmi utan Rvíkur megi verða tvímenningskjördæmi með einföldum lögum, býst ég við að geta fylgt, ekki sízt þar sem átt er við mjög stór kjördæmi, svo sem G.-K. og fleiri. Aftur á móti get ég ekki fallizt á hinn liðinn, um að hlutfallskosning sé viðhöfð í tvímenningskjördæmum. Slík kosning er út af fyrir sig mjög óskynsamleg og óréttlát, og till. er nú í þeim tilgangi einum borin fram að útvega flokknum meiri uppbót en honum ber að réttu lagi. Þó að uppbótarsætin verði ekki fleiri en 10, þá er það alveg nægilegt og uppfyllir allar réttlætiskröfur.

Þá hefi ég víst haft nóg orð um brtt. minni hlutanna og kem þá að till. okkar meirihl.manna. Eins og kunnugt er hefir allhörð barátta staðið um kjördæmaskipunarmálið síðan vorið 1931, eða í 2 ár. Þá ætluðu andstöðuflokkar stjórnarflokksins að taka höndum saman um sérbreytingu á kjördæmaskipuninni, sem Framsfl. gat ekki gengið að. Landinu átti að skipta í nokkur stór kjördæmi með hlutfallskosningum. Þetta kom greinilega fram bæði í ræðum, sem fulltrúar þessara flokka héldu á þingmálafundum, og eins í blöðum þeirra. Að þessum till. stóðu báðir flokkarnir, en jafnaðarmenn hafa þó alltaf helzt viljað hafa landið allt eitt kjördæmi, en það hafa hinir flokkarnir ekki getað fallizt á. Fram til þessa þings hefir afstaða jafnaðarmanna ekki breytzt. Sjálfstæðismenn í milliþn. báru aftur á móti fram till. um að hafa eingöngu einmenningskjördæmi, m. ö. o. að sleppa öðrum manninum úr tvímenningskjördæmum og hafa í staðinn uppbótarsæti, ótakmarkaðan fjölda. Ég býst við, að þetta hafi verið einskonar samningstilraun, og að þeir hafi haft fyrir augum samkomulag við Framsfl., en lýstu því jafnframt yfir, að til vara mundu þeir samþ. till. jafnaðarmanna um stóru kjördæmin. Á þinginu í fyrra báru báðir flokkarnir fram frv. til stjskrbreyt. Ég held, að meining sjálfstæðismanna hafi verið sú, að byggja í framkvæmdinni á till. fulltrúa sinna í mþn. um einmenningskjördæmi og ótakmörkuð uppbótarsæti. Þó voru við meðferð málsins í Ed. sett þau takmörk, að þm.talan færi ekki yfir 50. Á þinginu í fyrra bárum við framsóknarmenn í stjskrn. Nd. fram frv. um, að gamla fyrirkomulagið héldist, en þm.tala Rvíkur væri aukin upp í 8, og síðan höfð allt að 5 uppbótarsæti til jöfnunar milli flokkanna. En þessum till. var tekið mjög fálega af andstöðuflokkunum. Þessi hefir þá verið afstaða þeirra fram til þessa þings. Í þingbyrjun kemur fram þetta stjfrv., þar sem gamla skipulagið er lagt til grundvallar óbreytt og svo takmörkuð uppbótarsæti. Bendir þetta á vilja til lausnar málsins, sem framsóknarmenn gætu sætt sig við. Ef athuguð er afstaða Framsóknar, þá sést, að flokkurinn hefir frá byrjun spornað við því, að hin einstöku kjördæmi séu svipt þeim sérstaka rétti, sem þau hafa haft til þess að kjósa sér fulltrúa. Með þessu frv. er þeim kröfum fullnægt, því að það er byggt á gamla skipulaginu. Þess vegna finnst mér það alls ekki óeðlilegt, að Framsfl. vilji til samkomulags ganga inn á þetta frv., sem fullnægir að mestu leyti hans kröfum í málinu, þó þannig, að tala uppbótarsætanna verði færð niður, úr 12 í 10. Fyrst og fremst vegna þess, að ósk manna er, að þingið sé ekki fjölskipað um skör fram; en aðallega vegna þess, að fullsannað þykir samkv. útreikningum með tilliti til fyrri kosninga og eftir líkum um framtíðina, að engin ástæða sé til þess að efast um, að 10 uppbótarsæti fullnægi þeirri einhliða kröfu andstöðuflokkanna, að þeir komi að þingmönnum í nákvæmu samræmi við kjósendafjölda.

Ég sé ekki ástæðu til að orðlengja um þetta að sinni. En í sambandi við þetta vil ég þó minnast á, að nál. meiri hl. hefir orðið þess heiðurs aðnjótandi að vera prentað upp í ýmsum blöðum, t. d. í Morgunblaðinu, og hefir þar verið misskilið herfilega og skýrt út frá því misskilda sjónarmiði blaðsins, hvort sem sá misskilningur hefir verið af ásettu ráði eða ekki. Þar er haft eftir okkur, að réttlætinu sé nægilega fullnægt með 10 uppbótarsætum, en í nál. stendur, að hinu „flokkslega jafnrétti“ sé nægilega fullnægt. Hér er um sitt hvað að ræða. Andstöðuflokkarnir hafa alltaf miðað flutning málsins við að fá sem jafnasta þingmannatölu fyrir þingflokka, miðað við kjósendafjölda. En það eru miklu fleiri princip, sem þarf að taka tillit til. Það þarf að taka tillit til þeirra kjósenda, sem velja þingmann eftir persónulegu álit sínu á honum. Það þarf líka að gæta þess princips, að kjósendur megi velja þann mann, sem þeir álíta, að geti bezt túlkað og farið með þeirra nauðsynja- og áhugamál. Ef talað er um réttlæti á milli kjósenda, þá er það víst fyllsta réttlætið að skipta landinu niður í hnífjöfn kjördæmi að mannfjölda. Þá væru allir kjósendur í landinu jafnréttháir. En hinu flokkslega jafnrétti væri alls ekki fullnægt með því, sökum þess að þrátt fyrir jöfnun kjördæma gæti svo farið, að lítill flokkur fengi tiltölulega háa og stór flokkur tiltölulega lága þingmannatölu. En rétt kjósenda til persónulegs vals verður að hafa í hávegum.

Hvað snertir lækkun kosningaraldurslágmarksins niður í 21 ár, þá er það alveg sjálfsagt atriði, og fallast víst flestir á, að það eigi allan rétt á sér. Um það nýmæli, að fjárlög séu afgr. í Sþ., má vera alveg rétt, að það spari svo mikið fé, að það jafnist við þm.fjölgunina; og margir eru á þeirri skoðun, að rétt sé að sleppa því fyrirkomulagi, að þing sé skipt í deildir, og ég er ekki frá því heldur. Upphaflega var skiptingin til þess ætluð að efla konungsvald í þinginu, með því að hinir konungkjörnu þm. höfðu helming og þar með synjunarvald í Ed. Nú er sú ástæða burt fallin, en aðeins sú eftir, að sumir halda, að vinnubrögð þingsins verði betri með 2 málstofum en einni, en ég held, að þingið sé vel fært ef ekki betur til að vinna störf sín í einni málstofu.

Till. hafa komið fram frá utannefndarmönnum, þeim hv. 1. þm. S.-M. og hv. 1. þm. N.-M. En þeim býst ég ekki við að ljá mitt fylgi. Í till. hv. þm. N.-M. eru sýslufélög eða kaupstaðir algerlega lögð til grundvallar fyrir kjördæmaskipun, án þess að taka tillit til annars að nokkru ráði. Sú hugmynd held ég ekki, að eigi miklu fylgi að fagna, hvorki hjá þingi né þjóð. Ég vil aðeins minnast á síðustu brtt., um að alþm. sé eingöngu bundnir við sannfæringu sína, en ekki flokkssamþykktir eða þvílíkt. Ég held það sé hrapallegur misskilningur að ætla sér að banna stjórnmálaflokki að setja sérstakar skipulagsreglur og heimta af flokksmönnum, að þeir framfylgi þeim. Hitt er allt annað, að ef þm. vill ekki hlíta þeim reglum, þá getur hann valið um það tvennt, að beygja sig fyrir flokksagnum eða hreint og beint að fara úr flokknum.