16.05.1933
Neðri deild: 75. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2776 í B-deild Alþingistíðinda. (4500)
59. mál, stjórnarskipunarlög
Frsm. 1. minni hl. (Héðinn Valdimarsson):
Hv. 3. þm. Reykv. vék að mér nokkrum orðum út af því, sem ég sagði um stefnu Sjálfstfl. í kjördæmamálinu. Flestum ætti þó að vera ljóst, hvernig hann hefir hagað sér í þessu máli. Stjórnarskrármálið var hér á dagskrá 1927. Þá var Sjálfstfl. í meiri hl. og gat komið fram einhverju í málinu, hefði hann viljað. Eini árangurinn var skrípaleikur milli Sjálfstfl. og Framsóknar. Það var gerð sú stjskrbreyt., að þing yrði aðeins haldið annaðhvert ár, sem var svo aftur fellt á næsta þingi. — 1928 varð sú breyt., að það kom fram, að Sjálfstfl. gæti orðið fyrir barðinu á þessari kjördæmaskipun, en þeir áttuðu sig ekki fyrr en eftir dauðann. 1930 komum við jafnaðarmenn með þál. í Nd. um að breyta kjördæmaskipuninni. Þá talaði Jón Þorláksson fyrir hönd Sjálfstfl. Sagði hann þá m. a.:
„Það er allhörð krafa þetta, að kjördæmaskipunin skuli tryggja kjósendum jafnan rétt, hvar sem þeir búa . . . . Við verðum líka vissulega að horfa á hitt atriðið, að fámennum, afskekktum landshlutum er líka nauðsynlegt að eiga á þingi fulltrúa, sem er kunnugur þeirra hagsmunum og staðháttum og getur beitt sér fyrir þeirra málum. .... Ég er þeirrar skoðunar, og ég hygg, að tölurnar styðji þá skoðun, að af kaupstaðakjördæmum sé það ekki nema Reykjavík ein, sem fyrir verulegum misrétti verður og harðræði af núverandi kjördæmaskipun“.
Hann álítur þar ekki nauðsynlegt að fara út í gagngerða breyt. á kjördæmaskipuninni, en telur það næga lagfæringu að fjölga þm. Reykjavíkur. Þá ritaði Kristján Albertson í Vörð um nauðsyn á því að breyta kjördæmaskipuninni, en miðstjórn Sjálfstfl. gaf þá út yfirlýsingu um það, að slíkt kæmi ekki til mála. Almennur áhugi fyrir þessu máli vaknaði því ekki innan Sjálfstfl. fyrr en 1930. Lasta ég ekki, að hann vaknaði, en þó verður að segja það, að hann kom fram einungis af því, að flokkurinn varð sjálfur fyrir barðinu á kjördæmaskipuninni. Það er rangt hjá hv. 3. þm. Reykv., að Alþfl. og Sjálfstfl. hafi við síðustu kosningar haft ólíka skoðun á lausn kjördæmamálsins. Þá vildu ýmsir málsmetandi sjálfstæðismenn hafa 6—8 stór kjördæmi, og enda þótt við hefðum helzt kosið, að landið yrði gert að einu kjördæmi, þá lýstum við yfir því, að við myndum fallast á þessa lausn. En síðan byrjar afsláttarpólitík Sjálfstfl., sem endar nú í þessu plaggi frá stj.
Enda þótt við Alþfl.menn greiðum atkvæði með því, til þess að fá einhverja lausn á málinu, lítum við engan veginn á það sem endanlega lausn. Það var vitanlegt, að Framsókn myndi ganga eins skammt og hægt væri, og því skemmra sem meira lát væri á sjálfstæðismönnum. Verði málið ekki leyst nú, er ekki gott að vita, hvað eftir verður af kröfum Sjálfstfl. viðvíkjandi „réttlætismálinu“.