16.05.1933
Neðri deild: 75. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2781 í B-deild Alþingistíðinda. (4503)

59. mál, stjórnarskipunarlög

Frsm. 2. minni hl. (Magnús Jónsson):

Hv. frsm. meiri hl. játaði það, sem er líka alveg satt, að ekkert orsakasamband hefði verið milli kosningafyrirkomulagsins í Þýzkalandi og þess, að þeir hafa nú um stund glatað þjóðerni sínu. En þá kemur þetta bara ekkert málinu við, fyrst ekkert orsakasamband er þar á milli. Að blanda þessu tvennu saman væri eins og ef hv. frsm. borðaði einhverntíma fisk, en ég borðaði kjöt, og svo drukknaði ég eftir einn klukkutíma, og þá ætti það að stafa af því, að ég hefði borðað kjöt. (BJ: En sú samlíking). Og fyrst ekkert orsakasamband er þarna á milli, þá kemur það ekkert málinu við.

Hv. frsm. var enn að tala um þetta samkomulag, sem verið hefði milli Sjálfstfl. og Alþfl. um breytta kjördæmaskipun og myndun stórra kjördæma með hlutfallskosningu. Skaut þá einn hv. þm. inn í mjög kjarnorðri setningu, þar sem hann sagði alveg það sanna í þessu máli, því að þessir samningar hafa aldrei átt sér stað. Ágæt sönnun fyrir því er það, að þegar sjálfstæðismenn í mþn. settu fram sínar kröfur í málinu, þá var þar stefnt í allt aðra átt en þessir samningar áttu að hafa gengið. Hitt er skiljanlegt, að jafnaðarmenn játi þessa samninga á sig, því að svo sem kunnugt er, hefir lengi verið allmikið vinfengi milli þessara flokka, Framsfl. og Alþfl. Þeir hafa lengi unnið saman leynt og ljóst, svo að þegar Framsókn fer að bera út þessa sögu, þá bjóðast jafnaðarmenn til að hjálpa nú til upp á gamlan kunningsskap og bera nú vitni með sínum gömlu samherjum. Þetta er helzta ástæðan til þess, að þeir hafa vitnað hvorir með öðrum vestur á Patreksfirði.