16.05.1933
Neðri deild: 75. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2782 í B-deild Alþingistíðinda. (4504)

59. mál, stjórnarskipunarlög

Frsm. 1. minni hl. (Héðinn Valdimarsson):

Það er alrangt, sem 3. þm. Reykv. hafði eftir mér, að Alþfl.menn mundu greiða frv. atkv., ef tala uppbótarsæta yrði lækkuð niður í 10. Ég sagði, að með því að samþ. þessa þingmannafækkun gæti svo farið, að þeim flokki, sem hefir nú tiltölulega flesta þm., væru gefin tvö þingsæti, sem hann ætti ekki með réttu, svo að það væri ranglátara að hafa 48 þm. heldur en 50 með þessu kosningafyrirkomulagi.

Þá tók ég það greinilega fram, að við legðum svo mikið upp úr till. okkar um landslista, að við mundum ekki greiða frv. atkv. út úr þinginu, ef uppbótarsætum væri ekki úthlutað á þennan hátt.

Þó að orðadeilan hafi ekki verið milli mín og hv. 3. þm. Reykv. um þessa samninga milli Sjálfstfl. og Alþfl., þá vil ég samt taka fram, að það er rétt, að þótt við höfum ekki gert neinn beinan samning, þá var fullkomið samkomulag um það, þegar gengið var til kosninga, að berjast fyrir fáum, stórum kjördæmum, og ég hygg, að það hafi verið gert alstaðar í landinu, a. m. k. þar, sem Alþfl.fulltrúar voru staddir, og þar var talað um, að samkomulag væri um þetta hjá flokkunum. (MJ: Þetta er algerlega rangt). Þar voru mörg hundruð vitna, og þó að ég hafi það ekki við hendina nú, þá mun samt hægt að grafa upp orð þm. sjálfs um þetta.