20.05.1933
Neðri deild: 79. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2785 í B-deild Alþingistíðinda. (4512)
59. mál, stjórnarskipunarlög
Frsm. 1. minni hl. (Héðinn Valdimarsson):
Við Alþfl.menn hér í d. höfum borið fram þrjár brtt. við stjskrfrv., á þskj. 719. Um stafl. b. í 1. gr. frv. leggjum við aðeins til lítilsháttar orðabreytingar, og geri ég ráð fyrir, að það valdi engum andmælum; þar er aðeins skýrar fram tekið í brtt., sem átt er við í frv. um kosningu varamanna í Reykjavík. Á stafl. e. viljum við gera þá breyt. til samkomulags, að í stað þess, sem við óskuðum áður eftir því, að flokkarnir hefðu landslista samhliða kjördæmakjöri og að kjósendur greiddu atkv. annaðhvort frambjóðanda í kjördæmi eða landslista, þá leggjum við nú til, að flokkum verði heimilt að hafa landslista í kjöri við almennar kosningar. Samkv. þessari brtt. eiga flokkarnir að hafa rétt til þess, en ekki skyldu. Hér er því nokkuð dregið úr, þannig að þeir flokkar, sem ekki kæra sig um að hafa landslista, eru ekki skuldbundnir til þess. Við álítum, að Alþfl. vilji alltaf hafa landslista, til þess að safna atkv. sínum, þó hann bjóði ekki fram þingmannsefni í einstökum kjördæmum. Hinsvegar virðist svo sem stærri flokkarnir þurfi ekki að nota sér það, af því að þeir hafa að líkindum frambjóðendur fyrir sig í öllum kjördæmum. Við sjáum því ekkert því til fyrirstöðu, að sumir flokkar beri fram landslista, þó aðrir geri það ekki. Ég hefi áður gert grein fyrir því, að Alþfl. leggur mikið upp úr þessu atriði, að mega hafa sérstakan landslista, svo að hann mun ekki geta fylgt þessu stjskrfrv. að öðrum kosti út úr þinginu. Og ég held, að með þessari brtt. sé þetta ákvæði svo mikið mildað, að hinir flokkarnir hljóti að geta sætt sig við það.
Þá kem ég að stafl. c, en sú brtt. er samkomulagstilraun um fjölda uppbótarsætanna, þar sem við leggjum til, að í stað þess, sem nú eru í frv. ákveðin 10 uppbótarsæti, þá megi fjölga tölu jöfnunarþingsæta upp í allt að 12 með einföldum lögum, og verður þá tala þingmanna 50. Við höfum gert ráð fyrir, að ef það kæmi í ljós við kjördæmakosningar, að flokkarnir fengju ekki réttláta fulltrúatölu með 10 uppbótarsætum, þá muni jöfnunarsætum verða fjölgað upp í 12. Með þessu ákvæði er líka gengið svo langt til samkomulags við þá, sem vilja hafa lægri tölu jöfnunarsæta, að báðir stærri flokkarnir ættu að geta fellt sig við það. Ég vil þó taka það fram, að enda þótt þessi brtt. verði samþ. og að við munum fylgja frv. þannig breyttu að því er þingmannatöluna snertir, þá er fjarri því, að við séum ánægðir með það. Það er okkar skoðun, að endanleg lausn muni ekki fást í þessu máli með frv. stj. til endurbóta á hinu gamla stjórnarskipulagi. Okkar flokkur mun því halda fast við þann málstað, landið allt eitt kjördæmi, sem hann hefir haft, enda þótt hann geti sætt sig við þessa úrlausn í bráð.