20.05.1933
Neðri deild: 79. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2789 í B-deild Alþingistíðinda. (4515)
59. mál, stjórnarskipunarlög
Frsm. 1. minni hl. (Héðinn Valdimarsson):
Ég ætla aðeins að gera stutta aths. við ræðu 3. þm. Reykv. Hann talaði um það, hvernig fara mundi samkv. brtt. okkar Alþýðuflokksmanna, ef flokkur kæmi ekki að manni í einhverju kjördæmi, en ætti þó meiri hl. atkv. þar, en frambjóðandinn kæmist ekki að sökum þess, hve mikið af atkv. flokksins hefði lent á landslista. Ég fellst á það, að ákveða þurfi í kosningal., að flokkur sá, er fengi flest atkv. í kjördæmi, fengi þingsætið þar.