24.05.1933
Neðri deild: 82. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2791 í B-deild Alþingistíðinda. (4520)

59. mál, stjórnarskipunarlög

Frsm. 1. minni hl. (Héðinn Valdimarsson):

Við Alþýðuflokksmenn höfum orðið sammála um að greiða atkv. með stjskr. eins og hún kemur til að liggja fyrir, ef þessar till. frá stjskrn. verða samþ. Þó að við séum auðvitað ekki ánægðir með það, verður það látið lynda að sinni. Viðvíkjandi einu atriði, sem hv. þm. gat um, þ. e. samkomulaginu um kreppufrv., gengisviðaukann og verðtollinn, vil ég geta þess, að það nær ekki til Alþfl. Við höfum ekkert um þá hluti samið, svo að það munu vera hinir tveir flokkarnir. (TrÞ: Var tekið fram?). Nei.