24.05.1933
Neðri deild: 82. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2797 í B-deild Alþingistíðinda. (4529)

59. mál, stjórnarskipunarlög

Hannes Jónsson [óyfirl]:

Mér þykir það afarleitt, að hæstv. forseti skuli ekki sjá sér fært að taka málið út af dagskrá að þessu sinni, þar sem það er vitað, að nú liggja fyrir mjög varhugaverðar breyt. á frv., og þær eru þannig til komnar, að það veit varla nokkur maður af þeim, ekki einu sinni stjskrn. sjálf, fyrr en hún hefir kannske vitað af þeim klst. eða svo áður en fundur var settur. Enginn annar veit nokkurn hlut af þeim. Svo á að keyra þetta af með offorsi frá n. hálfu.

Ég veit, að hæstv. forseti skilur það vel, að þetta er mjög eðlileg ósk af hendi þeirra manna, sem vilja eitthvað vita um það, hvað þeir eru að gera. En þeim, sem er nákvæmlega sama, hvað gert er í málinu, og hugsa eingöngu um það, að þeyta því einhvernveginn áfram, í hvaða vanskapningsmynd sem það er, þeir þurfa engan umhugsunartíma til þess að bollaleggja, hvað þeir eigi að gera.

Ég hygg, að hæstv. forseti geti ekki neitað því að taka málið út af dagskrá, þegar svona stendur á. Hv. form. stjskrn. hefir líka óskað eftir, að málið væri tekið út af dagskrá.

Hv. þm. Str. sagði, að það gerði ekki svo mikið til, þó að það yrði eitthvað vitlaus afgreiðsla á þessu í Nd., af því að það væri alltaf hægt að breyta því í Ed. En hvers vegna má frv. þá ekki ganga til Ed. eins og það er, úr því að hv. þm. Str. hefir þessa ofurtrú á, að þar verði það fært til betri vegar? Hvers vegna er þörf á því, að nefndarmenn setji inn í það einhverja vitleysu í Nd.? Er þeim svo umhugað um, að það sjáist á því eitthvert mark frá þeim, þegar það kemur til Ed.? Nei, það er miklu betra fyrir nefndarmenn að gera það ekki, heldur en þessa vitleysu, og svo ætlaði hv. þm. Str. að óska eftir því, að þetta væri keyrt mönnum alveg að nauðugu í gegnum þessa umr.

Ég verð að vænta þess, þrátt fyrir það, sem hæstv. forseti hefir sagt, að hann þverskallist ekki við þessari ósk, að taka málið út af dagskrá, því að þetta er sannarlega ekki svo lítilsvert mál, að ekki megi gefa eina dagstund til athugunar á því nánar, jafnvel þó að ekki væri gefinn lengri frestur en svo, að málið yrði tekið aftur fyrir á fundi í kvöld. Ég myndi fyrir mitt leyti sætta mig við það, þó að fresturinn yrði ekki lengri. En ég vona það fastlega, að á þessa réttlátu ósk verði litið réttlátlega.

Ég get ekki sleppt hv. þm. Str. með það, sem hann sagði um frv. Hann sagði, að þetta ætti allt saman að ákveðast í kosningalögunum. En hvers vegna á þá ekki frekar að láta það allt óbundið um ráðstafanir uppbótarsætanna og láta það koma í kosningalögin, heldur en að koma með þennan vanskapning, sem n. vill koma inn í frv.? Þetta er einhver sá argasti kisuþvottur, sem mér virðist koma fram í gerðum n. Hún er að láta það sýnast, að hún vilji eitthvað og eitthvað, eins og hv. þm. Str. sagði, að gera öllum eitthvað til hæfis, láta alla hafa eitthvað og taka eitthvað af öllum, en athuga ekkert um það, hvort þær eru frambærilegar þessar afhöggningar og viðbætur hjá flokkunum.