21.03.1933
Neðri deild: 32. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 628 í B-deild Alþingistíðinda. (453)

3. mál, landsreikninga 1931

Atvmrh. (Þorsteinn Briem):

Það eru aðeins fá atriði úr ræðu hv. 3. þm. Reykv., er hann beindi til mín, og sem ég þarf að svara. Hann taldi mjög lítilsvert um þann niðurskurð í áætlun stj. á rekstrarkostnaði útvarpsins, sem ég skýrði frá, og sagði, að það væri lítil trygging fengin fyrir. því, að eftir henni yrði farið í reyndinni. Ég sagði ekki annað en það, að þessi áætlun sýndi hug stj. Jafnframt get ég sýnt hv. þm., ef hann vill hafa fyrir því að koma upp í stjórnarráð, greinargerð fyrir því, á hvern hátt þessi sparnaður er hugsaður.

Hv. þm. þótti það allt of mikið, að til hins almenna kostnaðar við rekstur útvarpsins á næsta ári þyrfti að greiða 11 þús. kr. úr ríkissjóði. Og benti hann á, að ef útvarpið hefði verið einkafyrirtæki, þá hefði orðið gróði á rekstri þess í stað taps. En það kemur ekki þessu máli við, hvernig útvarpið kynni að bera sig sem einkafyrirtæki, af því að það liggur ekki fyrir nein þáltill. um, að ríkið selji útvarpið til einkarekstrar. Og hv. þm. nefndi það ekki, að hann hefði nokkurn kaupanda á hendinni. (MJ: Það getur vel verið, að ég bendi á hann). Ef hv. þm. kemur með álitlegan kaupanda að ríkisútvarpinu, sem trygging væri fyrir, að ræki það eins vel og hið opinbera, þá stendur ekki á mér að taka slíkt tilboð til athugunar, ef þar væri þá ekki einhver dularbúin pólitísk klíka á ferðinni, sem vel er trúlegt, að væri fús að taka útvarpið í þjónustu sína.

Hv. 3. þm. Reykv. var eitthvað að minnast á ferðakostnað útvarpsstjórans. Það tekur að vísu ekki til mín, því það mun hafa átt sér stað áður en ég kom í stjórnina. En ég get um það atriði vísað til skýringar hæstv. forsrh. og samþykkis hv. 3. þm. Reykv. sjálfs sem yfirskoðunarmanns LR., þar sem hann hefir lagt til, að við svo búið skuli standa. Hv. þm. lét þess ennfremur getið, að það sæist ekki í reikningum frá útvarpsstjóra, í hvaða tilgangi hver ferð hefði verið farin, né hvert. Ég skal játa, að það er vöntun ef ekki er sýnt á ferðakostnaðarreikningum, hvert ferðin er farin og í hvaða skyni, þó að viða bresti á hjá öðrum í þessu efni, t. d. um það, á hvaða staði er farið, og get ég t. d. um það nefnt ferðakostnaðarreikninga ullarmatsmanna og kjötmatsmanna. En við úrskurð slíkra reikninga er venjulega mest litið á aðalupphæðina, og hún þá eitthvað skorin niður, ef hún þykir of há. Annars hygg ég, að hv. þm. tali hér mest um ferð útvarpsstjórans til Norðurlands sumarið 1931. En sú ferð mun hafa verið farin til þess að útvega útsölumenn að útvarpstækjum og komast í samband við umboðsmenn víðsvegar um land. — Annars var þetta gert áður en ég kom í stjórnina; og ef það á að reiknast mér til yfirsjónar að hafa ekki krafizt nánari skýrslu um þennan ferðakostnað, þá verður sú yfirsjón að skrifast á minn reikning.

Um greiðslu smáupphæðar til risnu var hv. þm. mér sammála og hafði ekkert við það að athuga.

Ég get tekið undir það með hv. þm., að útvarpsstjóri eigi ekki að hafa bifreið til einkaþarfa; en hinsvegar er ekki þar með sagt, að útvarpið þurfi ekki á bifreið að halda. Það er alveg óhjákvæmilegt fyrir útvarpið að hafa afnot af bifreið. Vélaverkfræðingur útvarpsins þarf t. d. iðulega að ferðast til stöðvarinnar á Vatnsendahæð. Og það er óhjákvæmilegt fyrir viðgerðarverkstæði útvarpsins að hafa bifreið, þegar viðgerðarmennirnir þurfa að fara um bæinn með útvarpstæki o. fl. Því að ekki verður þess krafizt, að þeir beri þau í fanginu út um bæinn, hvernig sem veður er, enda gæti það valdið stórskemmdum á tækjunum. Þess vegna verður ætið að sækja þau í bíl og skila þeim aftur í bíl. — Ég hygg því, að hv. 3. þm. Reykv. telji sig hafa ofmælt mjög um þetta atriði. (MJ: Hefir útvarpið fastan bíl til afnota?) Útvarpið hefir engan bíl, og skal ég láta þess getið, að ég hefi algerlega neitað um það.