24.05.1933
Neðri deild: 82. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2798 í B-deild Alþingistíðinda. (4530)
59. mál, stjórnarskipunarlög
Forseti (JörB):
Hv. þm. V.-Húnv. hefir heyrt, að það eru mjög skiptar skoðanir um það, hvort málið skuli tekið út af dagskrá eða ekki. (HJ: Hvað virðist hæstv. forseta sanngjarnt?). Ég á ekki svo gott með að gera öllum til hæfis, þar sem menn greinir svo geipilega á, en ég mun þó til málamiðlunar gefa í lengra lagi fundarhlé, svo að þm., sem vilja fá nokkurn frest til að hugsa málið, fái tækifæri til þess, en tel, að gott sé, að það væri rætt nokkuð áður en fundarhlé er gefið. Fundarhlé getur verið 2 klst. eða svo.