24.05.1933
Neðri deild: 82. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2800 í B-deild Alþingistíðinda. (4534)
59. mál, stjórnarskipunarlög
Frsm. meiri hl. (Bergur Jónsson):
Það er alveg rétt hjá hv. 2. þm. Reykv., að á laugardaginn, þegar þetta mál var til umr., þá lýsti ég yfir því, að við í meiri hl. stjskrn. mundum fylgja till. jafnaðarmanna um landslistafyrirkomulagið, en þar með er ekki sagt, að við munum fylgja þeim till., sem hér liggja fyrir á þskj. 789, því að þær eru talsvert breyttar frá því, sem var í till. jafnaðarmanna, því að þar er ákveðið, að annaðhvert sæti 10 efstu manna á landslista sé skipað frambjóðendum flokksins í kjördæmum utan Reykjavíkur.
Ég sé enga ástæðu til að vera að setja neina takmörkun í þessu efni. Ef gengið verður inn á, að rétt sé að taka upp landslistafyrirkomulagið á þann hátt, sem var í till., um rétt einstakra flokka, sem teldu sér hag í því, þá er það vitanlega sjálfsagt, að það sé algerlega óbundið, hvaða menn þeir hafa á lista og hvaða menn koma til greina við úthlutun jöfnunarþingsæta. Ég sé því enga ástæðu að vera með neitt makk á milli flokka um svona atriði. Þetta er atriði, sem á að afgr. eftir því, sem menn álíta rétt vera, en ekki að fara eingöngu eftir því, hvernig flokkarnir á bak við semja sín á milli.
Ég held fast við það, að ég mun ekki greiða atkv. með þeirri brtt., sem ég veit, að verður samþ., um að hafa þingmennina 49. En ég verð að segja það, að fyrst og fremst finnst mér það ákaflega lítilfjörlegur hlutur út af fyrir sig, ef við á annað borð göngum inn á að fjölga jöfnunarsætunum úr 10, hvort það er bundið við 11 eða 12, en frá sjónarmiði Framsfl. hlýtur það að vera heppilegra, að svo sé ákveðið, að fjölga megi þm. með einföldum lögum, frekar en að binda það í stjskr., vegna þess að það er vitanlegt, að Framsfl. getur ráðið því, hvort það er gert eða ekki. Þess vegna finnst mér miklu eðlilegra að fylgja þessari eðlilegu kröfu í þessu máli og veita aðeins þessa heimild, ef þörf virðist á því að bæta við jöfnunarþingsætum, að setja þá upp í 50, að láta þingið skera úr því, en láta það ekki vera komið undir stjórnarskránni.
Viðvíkjandi kröfu hv. þm. V.-Húnv. um að taka málið út af dagskrá, þá finnst mér, þegar ég ber það saman við afgreiðslu þingmála yfirleitt, að það sé ekki gott fyrir hæstv. forseta að neita því að taka málið út af dagskrá, þegar ég sem form. stjskrn. geri kröfu um það, vegna þess að mér hefir ekki verið gefinn kostur á að vera á þeim fundi, sem þetta makk með stjórnarskrármálið fór fram og þetta samkomulag var gert.