26.05.1933
Efri deild: 81. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2807 í B-deild Alþingistíðinda. (4547)

59. mál, stjórnarskipunarlög

Jón Jónsson:

Þá er nú þetta blessað mál komið til okkar hér í Ed. Um það hefir staðið styrr allmikill undanfarin ár, þótt harðastur yrði hann árið 1931, er þingkosningarnar snérust að mestu leyti um mál þetta. Við framsóknarmenn höfum alltaf goldið varhuga við öllum þeim breyt. á stjskr. vorri, sem miðuðu að því að flytja þungamiðju ríkisvaldsins úr sveitum landsins. Ég lít svo á, að bændastéttin sé kjölfesta þjóðfélagsins, og hún eigi því hér eftir sem hingað til að hafa mest að segja um stjórn landsins. Andstæðingar okkar í þessu máli hafa haldið því fram, að tilgangur þeirra væri ekki sá, að rýra áhrif bændastéttarinnar, heldur að skapa flokkslegt réttlæti. Við fyrir okkar leyti höfum talið sjálfsagt, að nokkuð yrði að því gert að fullnægja þessu svokallaða flokkslega jafnrétti. Í byrjun þings bar svo hæstv. stj. fram frv., sem átti að jafna mismuninn milli flokkanna. Í þessu frv. var lagt til, að landskjör félli niður, en í stað þess áttu að koma uppbótarsæti, og þau áttu að skipa þeir frambjóðendur afskiptu flokkanna, sem mest traust hefðu í kjördæmum utan Rvíkur, án þess þó að ná kosningu. Með því móti mundu veljast til menn, sem væru vinveittir sveitum og nytu persónulegs trausts fólksins þar. Þá mundi manngildi vera m. a. skilyrði fyrir því að hljóta uppbótarsæti, en þetta gerbreyttist við 3. umr. í Nd. Þessa síðustu meðferð málsins í Nd. verð ég að telja lítt sæmandi, þar sem þessu var flaustrað svo af, að einstökum dm. var synjað um 2 tíma frest til þess að geta yfirvegað till., sem fyrir lágu og fyrst komu fram á fundinum, og gerðu mjög viðsjárverða og flausturslega breyting á málinu. Slíkt háttalag hefi ég ekki þekkt hér á þingi, sem betur fer. Ég býst nú reyndar ekki við, að það hafi verið af ásettu ráði eða illvilja, að þessi breyt. komst inn, heldur af því, að menn höfðu ekki gefið sér tóm til að íhuga þetta og athuga. Ég býst við, að flausturs þessa gæti greinilega í frv., a. m. k. hefir verið klúðrað inn í það einu atriði, sem í framkvæmdinni má gera alveg tilgangslaust og gagnslaust. Breytingin, sem komst á í Nd., er við c-lið 1. gr., þar sem fallið er frá því ákvæði stjfrv., að uppbótarsætin hljóti þeir frambjóðendur flokkanna utan Rvíkur, sem tiltölulega mest fylgi hafi án þess að ná kosningu. Aftur á móti er flokkunum heimilað að hafa landslista í kjöri, og eiga þá uppbótarsætin að falla í skaut þeim, sem á listunum eru.

Með þessu móti er miðstjórnum flokkanna í Rvík alveg fengið valdið yfir uppbótarsætunum; þær þurfa ekki að spyrja sveitirnar um, hversu þau skuli skipa, heldur geta skipað þau tómum Reykvíkingum, alveg án tillits til, hvort þeir hafi nokkra þekking á þörfum sveitanna eða traust þeirra. Á þennan hátt er áhrifavald sveitanna stórlega rýrt, án þess ég búist við, að það hafi verið tilgangurinn.

Ég hirði ekki um að skýra þetta nánar, nema til frekari umr. komi, sem ég er þó ekki fús á að lengja óþarflega mikið. Um þingmannafjölgunina vil ég láta þá skoðun í ljós, að allt of langt er gengið í því. En ég býst ekki við, að aðgengilegt sé að fá því breytt. En þessu atriði er hægðarleikur að breyta, því að ég þykist viss um það, að sú breyt. hefir komið inn í frv. vegna flausturslegrar afgreiðslu, en ekki af því, að deildin hafi verið ráðin í að halda því.