26.05.1933
Efri deild: 81. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2817 í B-deild Alþingistíðinda. (4551)
59. mál, stjórnarskipunarlög
Jón Baldvinsson:
Ég ætla aðeins að víkja að því, sem hv. 3. landsk. minntist á um afgreiðslu Nd. á stjórnarskrárfrv. Hann hefir ekki átt nógu sterk orð til að lýsa því flaustri og þeirri óbilgirni, sem deildin hafi átt að sýna með því að neita um tveggja stunda hlé. Hv. þm. lýsti ennfremur, að till. hefði komið fram um hádegi, sem samþ. var seinna sama dag. Þetta er rétt að vísu, en aðeins að forminu til. En samskonar till. eða með svipuðum ákvæðum hafði komið fram í deildinni 18. maí. Hún kom til umr. 24. maí, eða í fyrradag. Svo að þessar ákúrur þm. falla alveg um sjálfar sig. En það getur verið, að í öllu þessu moldviðri af þingskjölum hafi þetta farið framhjá honum. Þessi breyt. á till. frá 18. maí er ekki annað en till. um að verða við ósk Framsfl. um að tryggja það ennþá betur, að frambjóðendur, sem koma á landslista, verði í kjöri í kjördæmum úti um landið. Að öðru leyti hefir till. legið fyrir í hart nær viku, svo að ekki þýðir að tala um flaustur Nd. Venjan er nú, að þm. hafa ekki lengri tíma, þegar liður á Alþingi, til þess að átta sig á till. og málum, heldur en vikutíma. Það er algengast, að till., og það stórvægilegar, komi daginn áður eða sama daginn og þm. verða að taka afstöðu til þeirra.
Annars gleður það mig, að það var ekki ætlun hv. 3. landsk. að fara í kringum ákvæði stjskr. í kosningalögunum. Hann þykist nú hafa meint það, að óska aðeins eftir því, að ákvæði stjskr. séu vel úr garði gerð. En mér skildist hann í fyrri ræðu sinni telja, að fara mætti í kringum þessi ákvæði stjskr.; en það held ég sé ekki hægt.