30.05.1933
Efri deild: 84. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2821 í B-deild Alþingistíðinda. (4558)

59. mál, stjórnarskipunarlög

Frsm. meiri hl. (Jón Þorláksson) [óyfirl.]:

Meiri hl. stjskrn. hefir skýrt frá því í nál. á þskj. 818, að hann mælir með því, að þetta frv. til stjórnskipunarlaga verði samþ. óbreytt. Þótt meiri hl. geri þessa till., þá ber ekki að skilja það svo, að nefndarmennirnir séu ánægðir með öll einstök ákvæði frv. En fyrir því áliti hefir verið gerð svo rækilega grein bæði í umr. hér á þingi og ekki síður utan þings, að ég sé enga ástæðu til að lengja þessa umr. með því að endurtaka það nú. Till. okkar um, að frv. verði samþ. óbreytt, byggist fyrst og fremst á því, að við teljum, að í sinni núv. mynd eigi það að geta fengið fullnaðarafgreiðslu frá þinginu, þar sem það var samþ. með svo yfirgnæfandi atkvæðafjölda í hv. Nd., 23 atkv. gegn 3, að ég ætla.

Því miður gat n. ekki öll orðið samferða um þessa till., og það liggja fyrir brtt. frá hinum 2 nm., hvor á sínu þskj., 831 og 838. Báðar þessar till. fela það fyrst og fremst í sér að draga úr ákvæðum frv. um jöfnun milli þingflokkanna með uppbótarsætum, og það er farið fram á í báðum till. að draga að verulegum mun úr þeirri jöfnun, sem í frv. felst. En nú er það einmitt einn af göllum frv. eins og það liggur fyrir, að sú jöfnun, sem frv. býður upp á, er ónóg, og þegar af þeirri ástæðu er það algerlega óaðgengilegt fyrir meiri hl. að ganga að því að rýra þessa jöfnunarmöguleika til muna fram yfir það, sem í frv. er, eins og þessar brtt. báðar fara fram á. Báðar till. lágu fyrir í n. og gekk atkvgr. um þær, svo ég hefi umboð til þess að lýsa því yfir f. h. meiri hl. n., að hann telur sig þeim andvígan.

Hér á fundinum er útbýtt brtt. á þskj. 861 frá hv. 3. landsk. (JónJ), sem n. hefir ekki haft til meðferðar, og ég hefi því ekki umboð til að taka afstöðu til hennar f. h. meiri hl. n., en ég get fyrir mína hönd sagt það, að þar sem hún felur í sér þrengingu á því frjálsræði, sem kjósendum er boðið upp á að því er snertir skipun landslistans eftir frv., þá sé ég ekki neina réttmæta ástæðu til þess að aðhyllast hana.