02.06.1933
Efri deild: 88. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2845 í B-deild Alþingistíðinda. (4576)
59. mál, stjórnarskipunarlög
4576Frsm. 1. minni hl. (Magnús Torfason):
Það er aðeins um þingsköp, sem ég ætla að segja nokkur orð. — Ég kann ekki við það, að þetta mál sé afgr. á síðustu stundu, ef til vill samkv. skrifl. brtt., sem ég fyrir mitt leyti hefi ekki haft tíma til að átta mig á, og því síður hefi ég haft tækifæri til að bera mig saman við flokksmenn mína um þessar till. Ég vil því óska þess, að málið verði tekið út af dagskrá í kvöld og verði tekið fyrir aftur á morgun. Þá ættu menn að geta verið búnir að átta sig nokkuð á þessum nýju till., sem fram hafa komið.