02.06.1933
Efri deild: 88. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2850 í B-deild Alþingistíðinda. (4579)
59. mál, stjórnarskipunarlög
Fors.- og fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson):
Hv. 2. landsk. lagði nokkra áherzlu á, að það væri óglöggt, hvað orðið þingflokkur þýddi í þessu sambandi. Og hann virtist hálfhræddur um, að þingflokkarnir fengju með þessu óeðlilega mikið vald, sem þá væri hrifsað frá kjósendunum. — Hér verður nú ekki um mikið vald að ræða. Ef svo væri ákveðið í stjskr., að allir frambjóðendur flokksins skuli taka efstu sætin á landslista, þá er ekki eftir af þessu valdi annað en formið. Það eru þá kjósendur hinna einstöku kjördæma, sem hver út af fyrir sig og allir í sameiningu skapa landslistann með því að ráða frambjóðendum. Á þann hátt væri varðveitt sambandið milli kjósenda og frambjóðenda, sem með frv. eins og það er nú er að nokkru leyti slitið. Er það aðalgalli frv., að það tengir ekki saman landslistann og kjördæmakjörið. En heppilegast er, að sambandið milli kjósendanna og landslistans sé sem traustast. Þetta verður öðruvísi en nú er. Nú er kosið um lista með vissum mönnum, milliliðalaust. En þegar settur er þessi milliliður, sem ráðgerður er í frv., þá er mikilsvert að haga honum þannig, að þetta samband haldist. Í frv. er þetta ekki eftir beinni línu. Þar er ákveðið, að annarhver af 10 efstu mönnum lista séu frambjóðendur. Hrein lína í þessu fæst með því, að allir á landslistanum séu frambjóðendur, eða þá enginn.
Það er stór bót, að þetta ákvæði sé gert svo úr garði, að saman fari fylgi við frambjóðendur í kjördæmum og fylgi við landslista, sem skipaður er sömu mönnum. Þetta færir líka nær því marki, sem sett var í stjórnarfrv., og sé ég ekki annað en að allir geti verið ánægðir með þetta. Og það ætti ekki að verða ofraun því samkomulagi, sem fengizt hefir um þetta mál, þó þessu og öðrum smærri atriðum yrði breytt, til lagfæringar á frv.