02.06.1933
Efri deild: 88. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2853 í B-deild Alþingistíðinda. (4581)
59. mál, stjórnarskipunarlög
Fors.- og fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson):
Ég sé greinilegan mun á sambandinu á milli kjósenda og frambjóðenda við núgildandi landskjör og á sambandinu milli kjósenda og landslistamanna samkv. stjskrfrv. Nú er auðvelt að koma fram lista. Nú eru þessir listar sjálfir kosnir af öllum, sem taka þátt í kosningu. En við það landskjör, sem hér um ræðir í frv., við úthlutun uppbótarsæta, er ekki hægt að koma við lista nema fyrir flokka. Og flest atkvæðin, sem ráða úrslitum um lista, mundu ekki verða greidd listunum sjálfum, heldur frambjóðendum í kjördæmum. Og fyrst atkv., greidd frambjóðendum í kjördæmum, ráða mestu um úrslit kosninga í jöfnunarþingsæti, hvað er þá eðlilegra en að hafa þá frambjóðendur í héruðum alla á landslista?
Ég skal sízt skorast undan því samkomulagi, sem orðið er. En það er vitanlegt öllum, að þingheimur gæti sætt sig við hvaða sæmilegt skipulag sem væri í þessum atriðum, þegar ekki munar öðru en því, hvort annaðhvert sæti á lista skuli skipað frambjóðendum í kjördæmum eða öll sætin. Ég er ekkert hræddur um afdrif málsins vegna misklíðar um þetta. En annars er það oft svo, að þegar höfuðatriði máls eru til lykta leidd, þá fer mönnum að finnast aukaatriði þess vera orðin höfuðatriði, og hér virðist mér einmitt slíkt koma fram.
Ég hefi með þessum orðum ekki lagt áherzlu á annað en þetta, að á landslista séu allir frambjóðendur í einstökum kjördæmum, og sé ég engin vandkvæði á að koma því þannig fyrir.