03.06.1933
Efri deild: 89. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2864 í B-deild Alþingistíðinda. (4599)
59. mál, stjórnarskipunarlög
Einar Árnason:
Út af því, sem hér hefir verið talað um samkomulag um afgreiðslu þessa máls, þá get ég tekið undir það með hv. 1. þm. Reykv., að það samkomulag skilst mér, að snerti ekki nema tvö aðalatriði frv., nefnilega tölu uppbótarsætanna og landslistann. En hinsvegar hefi ég alltaf álitið, að hið innra fyrirkomulag á landslistanum mætti alltaf tala um og leggja til um breytingar og bætur, svo framarlega að ekki verði raskað efnisatriðunum. Till. hafa komið fram um fyrirkomulag það, sem hafa eigi um framboð á landslista, og þá er sérstaklega athyglisverð sú till., sem hæstv. forsrh. bar fram, en hefir nú tekið aftur. Ég vil lýsa því yfir, að ég tek hana upp.