03.06.1933
Efri deild: 89. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2868 í B-deild Alþingistíðinda. (4604)
59. mál, stjórnarskipunarlög
Jakob Möller [óyfirl.]:
Ég er í raun og veru búinn að svara því áður, sem svara þarf af spurningum hv. 5. landsk. og við kemur brtt. minni. — Viðvíkjandi því, hvort flokkur eða partur úr flokki, sem skiptir um nafn, hefir rétt til að hafa landslista, vil ég segja það, að ef t. d. hv. 5. landsk. skipti um nafn — (JónasJ: Kallaði sig t. d. frjálslyndan). Já, einmitt frjálslyndan, þá hefði hann áreiðanlega engan rétt til að hafa landslista. Hv. þm. er Framsfl.maður og heyrir þeim þingflokki til. Hann öðlast því engan rétt með því einu að kalla sig sérstöku flokksnafni. Ég er ekki alveg sammála hæstv. forsrh. um skilgreiningu hans á því, hvað þingflokkur er. Ég álít, að þingflokkur sé sá flokkur manna, sem starfað hefir á þingi. Og ég tel ekki, að sá flokkur hætti að vera til sem slíkur, þó þing sé leyst upp eða rofið. Ég fyrir mitt leyti álít, að þeir gömlu þm. haldi áfram að vera þingflokkur, þar til nýir þm. hafa tekið við. Þetta er að vísu ekki úrskurðað mál. En ég byggi skoðun mína á því, að ef nauðsyn krefði þess, að þing væri kallað skyndilega saman meðan svo stendur, sem lýst hefir verið, þá er ekki til annara að leita en þeirra fulltrúa, er síðast áttu sæti á Alþ. Og ég er viss um, að þetta yrði framkvæmt svo. Er þá ekki annað hægt að segja en að þingflokkur haldi áfram að vera til, þar til nýr hefir fengið umboð. En eins og ég sagði í gær, þá er það nóg, ef svo er fyrir mælt í stjórnarskránni, að þingflokkur skuli vera til; það tryggir þetta, sem ég hefi skýrt frá, að væri álit mitt. Og ef þurfa þætti, mætti setja nánari ákvæði um þetta í kosningal.