20.03.1933
Neðri deild: 31. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 426 í C-deild Alþingistíðinda. (4639)

112. mál, fasteignamat

Pétur Halldórsson [óyfirl.]:

Herra forseti! Hv. þm. Borgf. benti á atriði í málinu, sem vert er að gera sér grein fyrir sérstaklega. Hann sagði nefnilega, að þetta væri orðið óhafandi nú, vegna þess að matið væri eiginlega byggt á ástandinu 1929, eða kannske 1930, en afurðaverð hefði fallið síðan um 65%, og fasteignamat til sveita byggðist aðallega á afurðaverðinu.

Hér er nú komið inn á ákaflega vandasamt viðfangsefni, sem víða hefir valdið deilum og vandræðum. En það er þetta: Að þegar fyrirtæki rentar sig ekki lengur, er þá sanngjarnt, að eigandinn megi lækka verð þeirra fasteigna, sem vegna fyrirtækisins eru notaðar, lækka verð þeirra á sínum efnahagsreikningi allt niður í núll, af því að rentur fyrirtækisins eru ekki til í bili? Fasteignin er að vísu einskis virði meðan ekkert hefst upp úr starfrækslunni, og getur verið sama sem einskis virði til annara hluta. En ef gengið er inn á það, að það beri fyrst og fremst að leggja afrakstur af hverju fyrirtæki til grundvallar fyrir verðgildi þeirra fasteigna, sem til rekstrarins þarf, þá er komið út á svo háskalega braut í sambandi við fasteignamat og fasteignaskatt, að vandi er að finna leið út úr því spursmáli. Og ég verð að segja, að það er virkilega vert fyrir hv. n., sem fær þetta mál til athugunar, að gera sér grein fyrir þessu, hvaða stefnu hér beri upp að taka. Ef það er svo, að ekki muni vera neinar líkur til þess, að fasteignir úti um sveitir landsins gefi af sér arð á næstu tíu árum, þá þykir mér nú fara að verða álitamál, hvernig skuli snúast við þeirra erfiðleikum. Að sjálfsögðu verður að taka tillit til þess við næsta fasteignamat, ef virkilega er svo komið, að fasteignir gefa af sér við skulum segja að meðaltali helming eða 1/3 af því, sem þær hafa gert síðustu 10 árin. Þá lækkar fasteignamatið að sjálfsögðu í hlutfalli við það, ef það þykir víst, að þetta muni ekki breytast á næstunni. En ég verð að líta svo á, að þessi vissa sé ekki fengin enn. Ekki álít ég heldur þetta frv. borið fram af því, að flm. telji, að ekki muni á næstu tíu árum verða réttlátt að skattleggja með þeim skattstigum, sem nú eru til. Ég held miklu fremur, eins og hv. aðalflm. sagði, að þetta sé meint rétt til bráðabirgða. Og ég vil benda á, að það er ekki praktískt fyrir þá, sem hér þykjast eiga um sárt að binda nú, að benda löggjöfinni á það, að þegar að því komi, segjum eftir 1- 2 ár, að þessi tegund eigna bæri miklu hærri skatt en nú er, þá skuli löggjafarvaldið kippa þessari samþykkt í burt og breyta í það horf, sem þá þætti sanngjarnt. Því að ef fasteignaeigendur búast við lækkun á matinu af því að erfitt er í ári, þá get ég ekki skilið, að þeir búist ekki við, að Alþingi hækki matið aftur, t. d. ef verðgildi peninga lækkar á næstu árum. Þetta er það, sem fasteignaeigendur bjóða ríkinu upp á með því að benda á, að Alþingi sjálft breyti fasteignamatinu.

Og ég held að Alþ. geti heldur ekki í augnablikinu gengið inn á það, sem hv. þm. Borgf. bar fyrir sig, að „rentabilitet“ 1- 2 ára geti gefið tilefni til breytinga á fasteignamatinu í landinu gersamlega. Ég mundi kannske taka öðruvísi í þetta mál, ef helmingur af matstímabilinu væri liðinn og hefði komið í ljós, að engar líkur séu til, að fasteignir mundu nokkurn tíma á 10 árum ná því verði, sem sanngjarnt mætti teljast. Þá væri kominn tími til að athuga þetta, en þó helzt í því formi, að játa fara fram einskonar aukamat til að jafna metin, sem gilti þangað til reglulegt mat færi fram. Hitt verð ég að álíta, að Alþingi megi ekki fara inn á þá braut með einföldum 1. að gera breytingu á mati fasteigna í öllu landinu hvenær sem því sýnist.

Ef fasteignamatið lækkar nú um næstu áramót og menn færa það inn á efnahagsreikning sinn og byggja á því, eins og vera ber, þá lækka um leið eignir þeirra um 10%. Mættu þeir þá ekki draga þessi 10% frá tekjum sínum það árið? Líklega ekki, samkv. venjum um þetta efni, en þó gæti ég trúað, að deilur um þetta vektust víðsvegar, því að segja mætti, að eignin hafi rýrnað.

Þá er spurning um það, hvort það eru fasteignaeigendur, sem fá þetta eftirgefið. Það er svo um fasteignaskatta alla, að ekki eru eigendur einir um að greiða þá í mörgum tilfellum, heldur deilast þeir yfir á þá, sem fasteignirnar nota. Það er þess vegna ekki rétt orðað, að það sé verið að sleppa eigendum fasteigna við þessi gjöld. Sennilega væri réttast að segja, að verið sé að gefa fasteignaeigendum nokkuð af þessu gjaldi, þann hlutann, sem leigjendur þeirra borga þeim. Líklega hefði þetta engin áhrif á húsaleigu í kaupstöðum eða til sveita.