20.03.1933
Neðri deild: 31. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 428 í C-deild Alþingistíðinda. (4640)

112. mál, fasteignamat

Flm. (Magnús Jónsson):

Því er nú svo hagað til, að því er ég veit bezt, í Rvík um framtal til tekju- og eignarskatts, að ekki er farið eftir fasteignamati. Hér hefir skattstofan nefnilega tekið þá aðferð að meta sjálf eignirnar, og eru tekjur af húseignum reiknaðar eftir allt öðru mati en fasteignamati, svo að þessi lækkun mundi enga raunverulega þýðingu hafa í þeim efnum. Aftur á móti fannst mér hv. þm. snúa þessu við, þegar hann taldi eignina lækka um 10% við það, að þessi skattur er lækkaður. Í raun og veru hækkar eignin, því að eignin rentar sig betur.

Út af því, sem hv. 4. þm. Reykv. sagði síðast, að eigendur greiddu ekki skattinn, þá er það dálítið sitt á hvað. Í raun og veru greiða eigendur skattinn. Og þegar til lengdar lætur, yfirfærast allir slíkir skattar og allar kvaðir á eigendur sjálfa. Hitt er náttúrlega rétt, að þetta mundi sem bráðabirgðaráðstöfun sennilega koma eigendum í mörgum tilfellum að góðu, og það er einmitt meiningin. Tilgangur minn a. m. k. með flutningi þessa frv. er sá, að létta þessu á eigendum, af því að nærri liggur, að menn geti ekki haldið eignunum, eins og skatturinn er orðinn hár.