23.03.1933
Neðri deild: 34. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 437 í C-deild Alþingistíðinda. (4652)
115. mál, áfengislög
Flm. (Jón Auðunn Jónsson):
Ég mun ekki verða margorður um þetta frv. að sinni. Það er samhlj. frv. því, er var hér á ferð í fyrra, en dagaði uppi; þó eru flm. nú fleiri. Allar sömu ástæður fyrir frv. eru nú og þá, nema frekar sé. Allir hljóta að hafa veitt því eftirtekt, að heimabrugg hefir vaxið svo stórkostlega á síðustu árum, að flestum hrýs hugur við. Margir, sem áður voru fylgjandi banninu, hafa nú séð, að það er allt annað en heppilegt að halda áfram á sömu braut, eftir að landabruggið kom til sögunnar og smyglunin hefir aukizt.
Menn greinir á um leiðir í þessu máli sem öðrum, en ég fullyrði, að ekkert annað hefir vakað fyrir okkur flm. frv. en að reyna að halda áfengisneyzlunni í skefjum og að minnka ofnautn áfengisins í landinu.
Ástandið er nú slíkt hér á landi, að óleyfilegt vín er bruggað í öllum sýslum nema e. t. v. 2 eða 3. Það er vitað, að bruggið eykst stórkostlega með hverju ári. Bruggunin var ekki byrjuð svo að teljandi sé fyrir 3 árum, en nú flytja útvarpið og blöðin nær daglega fréttir af mönnum, sem teknir hafa verið fyrir bruggun, og er þó víst, að það er ekki nema örlítill hluti bruggara, sem kemst í hendur lögreglunni. Í kaupstöðunum hefir neyzla óleyfilegs áfengis aukizt mikið síðan landabruggið byrjaði, en í sveitunum tekur þó út yfir. Fyrir 3- 4 árum mátti heita, að sveitirnar væru þurrar, en nú er í sveitunum drukkið alveg eins mikið og í kaupstöðunum og nálega eingöngu heimabruggað áfengi. Hefir þessi ölvun í sveitunum komizt svo langt, að þess eru dæmi í haustréttum, að ekki hefir verið hægt að draga fé í sundur heilan sólarhring, vegna almennrar ölvunar. Er það orðinn daglegur viðburður, að menn og jafnvel konur sjáist ölvuð á almannafæri.
Það er sannfæring okkar, sem þetta frv. flytjum, og fjölmargra annara, að bannl. verði ekki lengur haldið uppi að nokkru gagni. Hitt er aftur á móti álit okkar, að með skynsamlegri áfengislöggjöf megi takast að draga mjög úr neyzlu áfengra drykkja og koma í veg fyrir aukningu áfengisnotkunar meðal yngri kynslóðarinnar sérstaklega, en hjá henni hefir neyzlan stóraukizt síðari árin, ekki sízt í sveitunum. Ég veit, að sumir bannmenn halda því fram, að minna sé neytt af áfengi í landinu nú en þá er bannið var lögleitt. Ég er þar á annari skoðun, einkum nú, eftir að landabruggið hefir aukizt svo gífurlega sem raun er á orðin. Er ég sannfærður um, að hér er ekki minna neytt af óleyfilegu áfengi en sem svarar 1 lítra á mann á ári af hreinum vínanda, fyrir utan hin leyfilegu Spánarvín. Opinberar skýrslur um þetta eru ekki til, og verð ég því að fara eftir ágizkun, sem ég styð við ástandið, eins og það blasir við mér, og kunnugra manna sögn, en þeir segja, að í nálega öllum kaupstöðum landsins megi hvenær sem er fá smyglað áfengi, og í sveitunum er alltaf nóg af heimabrugguðu áfengi. Er hvergi þurrð á því, nema e. t. v. í 2- 3 sýslum, en þá verður það auðvitað flutt þangað inn frá heimabruggshéruðunum.
Enginn mun neita því, að meira er nú drukkið í sveitunum en var árin 1906- 12. Nú sjást í mörgum sveitum ölvaðir menn á opinberum samkomum. Ástæðan er að nokkru leyti sú, að fólk, einkum yngra , fólkið í sveitunum, er farið að neyta víns í svona ríkum mæli til þess að demonstrera gegn þvingun þeirri, sem bannlögunum er samfara. Það er líka komið á daginn, að þær þjóðir, er reynt hafa vínbann, eru nú nálega allar horfnar frá því. Bandaríkin eru eina ríkið, þar sem ríkisbann er ennþá að lögum, en menn sáu það við síðustu kosningar þar í landi, að meiri hl. þjóðarinnar er orðinn á móti banninu, og þing og stj. eru nú búin að gera ráðstafanir til að leyfa bruggun og sölu á sterku öli, og eru nú á leiðinni að leyfa sölu á flestum sterkum vínum. Þó voru bannlög sett í Bandaríkjunum eftir að farið hafði fram þjóðaratkvæði og nálega 4/5 atkv. verið með banninu. Í Kanada var það svo, að fylkjunum var 1905 gefið leyfi til að setja á hjá sér vínbann, með því einu skilyrði, að þjóðaratkvæðis væri leitað og meiri hl. atkv . væri með banni. Var síðan sett vínbann í mörgum fylkjum t. d.:
Í Prince Edwards Island voru sett bannlög 1907. Atkvgr. 10616 með, 3390 móti. Síðan hefir ekki verið leitað atkvgr. í þessu fylki.
Í Albertafylki voru greitt atkvæði 1915. Féllu atkvæði svo: 58295 með, 37509 móti. Bannlög sett sama ár. Var sett það skilyrði, að atkvgr. skyldi aftur leitað innan 10 ára. Það var gert 1923 og fór svo: 61647 með, 100694 móti. Var bannið þar með afnumið.
Í Manitobafylki var greitt atkv. 1916, og fór svo: 50484 með, 26502 móti. 1923 var aftur greitt atkv., og fór svo: 68244 með, 108244 móti. Var bannið þar með afnumið.
Í Saskatchewanfylki var greitt atkv. 1917. 95249 með, 23666 móti og bannlög sett sama ár. Aftur var greitt atkv. 1924 80391 með, 119337 móti. Bannið afnumið.
Í Ontario var greitt atkv. 1919. 792942 með, 369434 móti. Bannlög sett sama ár. Aftur var greitt atkv. 1926. 445414 með, 701088 móti. Bannið afnumið.
Ég tek þessar tölur vegna þess, að fáum mun kunnugt um reynslu Kanadabúa í þessu máli. Um þjóðaratkvgr. í Noregi og Finnlandi munu flestir hér vita.
Nú er vert að athuga það, hvort áfengisneyzla hefir aukizt eða minnkað í þeim löndum, sem ekki hafa haft bann, t. d. í Danmörku og Englandi. 1906- 1910 var neyzlan í Danmörku af hreinum (100%) vínanda á mann 7,40 lítrar á ári.
1929- 1931 var þessi tala komin niður í 2,56 lítra. Áfengisneyzlan hefir þannig minnkað um meira en helming, nærri því um 2/3.
Í Englandi var 1895- 1900 þessi neyzla 4,5 gallonur á mann á ári. 1928- 1930 var neyzlan komin niður í 2 gallonur á mann á ári og hefir þannig lækkað um frekan helming. Ég þekki ekkert land, nema Kanada, þar sem neyzlan ekki hefir stórum minnkað á síðustu áratugum, og þó opinberar skýrslur sýni aukna neyzlu í Kanada, þá eru líkur til, að minna sé drukkið þar en fyrir 20 árum. Óhemju miklu áfengi hefir verið smyglað þaðan til Bandaríkjanna, og það áfengi, sem og það, sem Bandaríkjamenn hafa neytt í Kanada, er talið á skýrslunum. Sumir halda því fram, að yfir 50% af því áfengi, sem talið er á skýrslum í Kanada, sé neytt af Bandaríkjaborgurum.
Ég hygg, að allir séu sammála um, að vínnautn Íslendinga hafi stórum minnkað árin frá 1870 og til 1909, þegar bannlög voru sett. Við verðum að gæta þess, að þegar litið er á innflutningsskýrslurnar síðari árin eða frá 1905- 09, var mikill fjöldi útlendra sjómanna, sem komu hér til lands, og þeir neyttu ekki óverulegs hluta af því víni, sem fluttist inn í landið. Það er eftirtektarverð skýrsla, sem Lord Amulree's nefndin í Englandi hefir gefið um vínneyzlu þar í landi. Þessi n. var sett með konunglegri tilskipun til að athuga ástandið og benda á leiðir til að draga úr vínnautn. Í nefndinni voru jöfnum höndum menn, sem höfðu trú á banni, og menn, sem ekki höfðu trú á banni. En n. komst einróma að þeirri niðurstöðu, að það mundi ekki leiða til minnkandi áfengisneyzlu þar í landi að setja bann. Ég skal aðeins drepa á helztu niðurstöður, sem nefndin komst að. Skýrslan er mjög yfirgripsmikil, vegna þess að margir menn hafa unnið þetta starf og n. hefir setið á rökstólum 4 eða 5 ár. Þeir segja, að vínnautn hafi minnkað geysimikið í Englandi og samfara því hafi dauðsföll og afbrot af völdum ölæðis og ýmiskonar lögreglubrot minnkað mikið. Tala dauðsfalla af völdum ölæðis var 113 af millj. árið 1919, en minnkaði ofan í 16 árið 1930. Ölæðisafbrotum fækkaði úr 227730 árið 1900 niður í 53000 árið 1930.
Þeir segja, að þjóðin, sem var drykkfelld, sé nú að verða tiltölulega reglusöm. Þeir segja, að öll sólarmerki bendi til þess, að Englendingar verði áður en langt líður mjög reglusöm þjóð. Aðalástæðurnar fyrir þessum góða árangri telja þeir tvennskonar. Sú fyrri er langvinn og fer vaxandi, en hin er skammvinn og breytileg.
Í fyrri flokknum telja þeir, að þetta hafi mjög góð áhrif til minnkandi áfengisneyzlu: Auknar íþróttir, ódýrari og meiri farartæki til ferðalaga á skemmtitímum fólksins, ódýrari skemmtanir, fleiri bókasöfn og lesstofur, fleiri kvikmyndahús og bætt húsakynni á veitingastöðum og síðast en mest almenningsálitið. En til hins flokksins, sem þeir telja, að hafi skammvinn áhrif og breytileg, sé verð áfengisins samanborið við tekjur manna og efnahag, í öðru lagi takmarkaður sölu- og veitingatími. Mest og varanlegust áhrif telja þeir, að almenningsálitið hafi skapað þar í landi, því eins og víða annarsstaðar þar, sem mikils víns var neytt, var það álitið lítil hneisa að vera áberandi ölvaður á almannafæri og jafnvel við verk. En nú sé það talið álitshnekkir að vera ölvaður á almannafæri og ekki hvað sízt við verk.
Ég veit, að hv. dm. er kunnugt um, hve geysilega mikil afbrot og lögreglubrot hafa hér í Rvík verið samfara vínbanninu og neyzlu áfengis síðustu árin. En það hefir þó lengst af verið svo, að menn hafa ekki verið teknir fyrir bruggun, enda mun lítið hafa að henni kveðið til 1931. Það er fyrst á árinu 1924, að 4 menn eru sektaðir fyrir bruggun, svo lækkar þetta 1925- 26 niður í einn mann, 1927 eru það 5 menn, 1928 3, 1929 eru 4 menn sektaðir, 1930 2 menn, en 1931- 1932, þá er öðruvísi. Árið 1931 eru hér í lögsagnarumdæmi Rvíkur 16 menn teknir fyrir bruggun, og árið sem leið munu þeir hafa verið yfir 30, og þó er það eins og allir vita ekki nema örlítill hundraðshluti af þeim mönnum, sem brugga, sem sæta ákæru og eru sektaðir.
Menn greinir sjálfsagt á um það, hve mikils ólöglegs víns er neytt hér á landi, og það er hægt að deila um það, því engar sannanir er hægt að færa fyrir því. En ég er sannfærður um það, eftir því sem næst verður komizt, að það er ekki undir 100 þús. lítrar af hreinum vínanda, sem neytt er í landinu árlega af heimabruggi og smygluðu áfengi. En hverjir hafa svo hag af þessu? Það eru fyrst og fremst útlendir menn, sem smygla víninu inn í landið og fá þar með þær tekjur, sem ríkissjóði ber með réttu. Svo og þeir menn, sem brugga og selja í stórum stíl. Ég held, að eins og nú er komið, sé líka rétt að líta á fjárhagshlið þessa máls. Ef maður gerir ráð fyrir því, að það sé neytt eins mikils ólöglegs víns eins og ég gat um áðan, og ég er persónulega sannfærður um, að það er ekki of mikið í lagt, þá er það sýnilegt, að ríkissjóður missir ekki óverulegar tekjur við að halda í bannlögin. Jafnvel þó að við neytum minna víns en flestar aðrar þjóðir, og það hygg ég að sé og muni verða, þrátt fyrir það að bannlögin yrðu afnumin, þá mundu tekjur ríkissjóðs aukast stórkostlega af sölu áfengra drykkja, sem koma inn í landið í stað þess, sem er smyglað og bruggað í landinu sjálfu.
Sumir vilja halda því fram, að þegar bannlögin verða afnumin, verði fólkið miklu drykkfelldara en áður. Við sjáum reynslu Norðmanna í þessum efnum. Norðmenn neyta minna víns nú en nokkru sinni fyrr, eða um 2,2 lítra af vínanda á mann árið 1932, og er það vitað, að það er ekki óverulegur hluti, sem útlendir ferðamenn neyta af áfengi þar, því að þeir skipta tugum þúsunda árlega. Margir þeirra eins og gerist og gengur neyta víns daglega. Ferðamannastraumurinn hefir aukizt stórlega til Noregs á síðustu árum.
Við skulum gera ráð fyrir því, að við neytum ekki meira víns þó bannið verði afnumið en við neytum nú, eða 100 þús. lítra, auk Spánarvínanna, sem nú eru um 50 þús. lítrar af hreinum vínanda á ári. Við erum samt lægstir í áfengisneyzlu allra þjóða í álfunni. Það vorum við einnig fyrir 1909. (VJ: Það er óþolandi). Það má vera, að þessum bannmönnum, sem grípa fram í, væri það ljúft undir niðri, að það sýndi sig, að vínneyzlan ykist, svo þeir gætu sagt á eftir: Við höfðum rétt fyrir okkur. En þegar til alvörunnar kemur vil ég mega gera ráð fyrir, að það sé vilji allra að halda vínnautninni í skefjum, eins þó að bannlögin verði afnumin og máske almennara eftir að bannlögin eru afnumin. Andstæðingar þessa frv. héldu því fram í fyrra, að með því að selja hina sterkari drykki við háu verði, þá yrði heimabrugginu ekki útrýmt. Það má vel vera. En ég vil sýna þeim fram á, að það er hægt að ná stórkostlegum tekjum í ríkissjóð, sem nú fara til bruggara og smyglara, með því móti að selja brennivín, en það mundi mest notað af almenningi, svo ódýrt, að bruggarar og smyglarar geti ekki keppt við ríkiseinkasöluna, þó þeir vildu, sem ég efa. Náttúrlega er það á valdi þings og stjórnar á hverjum tíma að ákveða söluverð slíkra áfengra drykkja.
Ég vil vænta þess, að hæstv. stj. hafi það í huga, að það er nauðsynlegt að útrýma heimabrugginu áður en landsfólkið er orðið svo samdauna þessu bruggi, að það vilji ekki annað drekka.
Ég þekki þess dæmi, því miður, að einstöku menn leggja sér til munns kogespritt, og þegar þeir eru búnir að venja sig á það, vilja þeir helzt ekki annað drekka. Það er landsfræg sagan um prestinn sem sagði: „Vitið þið, að hann N. N. drekkur koges, bölvað svínið, hann drekkur koges, og svo er hann hundnízkur á þetta“.
Ég geri ráð fyrir því, að neyzla áfengis ykist ekki, þó bannlögin væru afnumin. Yrðu þá auk Spánarvínanna fluttir inn 100 þús. lítrar af sterku áfengi. Gerum nú ráð fyrir, að af þessu áfengi væru fluttar inn 150 þús. flöskur af 8% brennivíni og það selt svo ódýrt, að bruggið, „landinn“, ekki gæti keppt við það, t. d. á 3 kr. flaskan. Þá yrði verzlunarhagnaður og tollur samt yfir 1 kr. á flösku eða minnst 150 þús. kr. Hinn helmingurinn væri whisky, romm, kognac og líkörar og á þá vöru lagt, meðtalinn tollur, 6 kr. á flösku, en það verð (ca. 12 kr. flaskan) útilokaði smyglun. Þá yrðu tekjur ríkisins af því um 900 þús. kr. Tekjuauki ríkissjóðs yrði þá samt um 1 millj. kr. á ári, með óbreyttri áfengisneyzlu.
Ég og meðflm. mínir höfum ætlazt til þess, að einhver hluti af þessum tekjum ríkissjóðs gengi til þess að halda uppi fræðslu um skaðsemi áfengis og til að vinna móti áfengisneyzlunni í landinu. Í öðrum löndum, þar sem ekki er vínbann, eins og t. d. í Danmörku, þar er varið í kringum 2½% af tekjum ríkissjóðs af áfengi til þess að halda uppi bindindisfræðslu og annari bindindisstarfsemi. Ég get sagt fyrir mig og þá líka meðflm. mína, að þó við höfum sett í frv. 15 þús. kr. til slíkrar starfsemi, þá getum við vel fallizt á miklu hærri upphæð.
Að öðru leyti ræddi ég þetta mál við fyrstu umr. þessa sama frv. á síðasta þingi, og get þess vegna látið hér við sitja að sinni.