05.04.1933
Neðri deild: 45. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 538 í C-deild Alþingistíðinda. (4672)

115. mál, áfengislög

Jóhann Jósefsson:

Hv. þm. Str. og hv. þm. Borgf. höfðu talsverðar aths. að gera við það, sem ég sagði í fyrri ræðu minni. Ég skal áður en ég lýk máli mínu koma nokkuð inn á það, hver var þungamiðjan í því, sem ég sagði, en ég vil fyrst minnast á það, að þessir hv. þm. lögðu á ýmsum stöðum mjög skakkan skilning í þau ummæli, er ég viðhafði í fyrri ræðu minni, og hið sama hefir og víðar komið fram. Sýnir þetta eitt með öðru, að þegar það hendir jafnvarkáran og grandvaran mann og allir vita, að hv. þm. Borgf. er, að fara svo herfilega rangt með það, sem andstæðingur hans í þessu máli segir, sem hér er raun á orðin, hve það er mjög erfitt að ræða þetta mál við æsta bannmenn, án þess að þeir lendi út í ógöngur og jafnvel geri andstæðingum upp orð, sem þeir hafa aldrei sagt.

Ég hafði lagt áherzlu á það, að ég áliti, að í þessu máli þyrftu að skapast hjá þjóðinni hreinar línur. Það þýddi nú hv. þm. Borgf. á sinn hátt. Ég held, að ekki hafi verið þörf á því að misskilja þetta, en fyrst það hefir verið gert, viljandi eða óviljandi, vil ég bara benda á það, að síðan bannið var lögleitt hér á landi hefir afstaðan til bannsins breytzt svo mjög, að það, sem áður var talið sjálfsagt að fylgdist að, aðflutningsbann og tilbúningsbann samhliða algerðu bindindi, er nú í framkvæmdinni alls ekki samferða, m. ö. o. það er ekki hið sama að vilja halda í þau bannlagaslitur, sem nú gilda, eins og þessir hv. þm. vilja, og það að vera bindindismenn. Ég veit að vísu, að hv. þm. Borgf. og hv. þm. Str. eru einlægir bindindismenn um leið og þeir eru bannmenn, en það er víða svo, að þetta fer ekki saman. Þetta er óheillaástand, sem er til ills eins. Það þurfa að skapast hreinar línur í þessu efni, það væri hinn mesti ávinningur fyrir heilbrigða bindindisstarfsemi.

Hv. þm. Borgf. var mjög margorður um það, að ég skeytti skapi mínu á bindindismönnum og bannmönnum með þeim afleiðingum, sem orsakast mundu af breyt. áfengislaganna, en það er ekki rétt. Það er aldrei þörf fyrir þá, sem vita sig fara með réttan málstað að grípa til þess að færa úr lagi það, sem andstæðingarnir segja, og það gegnir furðu um jafnrökfastan mann og greinargóðan og hv. þm. Borgf., að hann skuli grípa til slíks óyndisúrræðis. Ég deildi að vísu allhart á vissa tegund bannmanna, en hinsvegar gaf ég alls ekki tilefni til, að allir bannmenn tækju þessa ádeilu til sín, og þegar hv. þm. Borgf. og málgagn templara hér í bæ færir þessa ádeilu mína út á það svið að vilja láta hana ná til allra bannmanna, þá er hér um hina mestu rangfærslu að ræða. Hv. þm. Borgf. er eins vel kunnugt um það og mér, að ýmislegt fylgir bannstefnu sumra manna, sem ekki fer vel saman við sannan bindindisáhuga, og ég geri ráð fyrir því, að undir niðri sé honum engu betur við bindindisyfirskin þeirra manna, sem lýsir sér í tómri bannstreitu, þótt þeir séu ekki bindindismenn og sýni það hvenær, sem þeir koma höndum undir, hverjir þeir eru, ég hygg, að hv. þm. sé engu betur við þessa skoðanabræður sína heldur en hreina og beina andbanninga.

Hv. þm. sagði, að ég kæmi nokkuð seint fram með álit mitt á bannlögunum. Það má vera, að ég hefði getað komið með álit mitt fyrr, en það er nú svo, að þeir, sem einhverntíma hafa trúað því, að þau gerðu gagn, þeir eru nú margir hverjir seinir að sjá, að í óefni er komið. En þó það sé nú svo, að ég komi seint með álit mitt, þá er nú útlit fyrir það, að hv. þm. Borgf. ætli að verða ennþá seinni. Ég sem sé tel líklegt, að hann eigi eftir að sannfærast um ýmislegt í þessu efni, sem hann enn virðist blindur fyrir. Það er nefnilega eins og allir vita hvergi nærri allt, sem sýnist, um það gagn, sem sumum finnst, að bannlögin gera. Ég held, að það sé óhætt að draga allmikið í efa það, sem hv. þm. Borgf. sýnist í þessu efni.

Þá minntist hv. þm. Str. á mikla bindindisöldu, sem hann kvað vera að rísa meðal æskumanna landsins. Hann talaði um það, að um 80 unglingar hefðu í vetur hlustað með andagt á fyrirlestur, er hann hefði flutt fyrir menntaskólanemendur um bindindismál. Hv. þm. Str. er áheyrilegur ræðumaður og mörgum þykir gott á hann að hlýða, en það er enginn vottur um sterka bindindisöldu, þó þessir unglingar hlustuðu á hann, það er æskilegt, að svo væri, en þetta er engin gildandi sönnun, sízt fyrir þá, sem daglega sjá breytni manna benda í aðra átt.

Það er alveg óþarfi fyrir hv. þm. Borgf. að skipa mér fyrir mína framkomu í hóp þeirra manna, sem vilja níða bindindismenn í landinu fyrir þeirra starf. Það er svo fjarri því, að svo sé. En ég held, að það yrði til framdráttar bindindisstarfseminni, ef hreinsað væri til í þessu máli, með því að láta heita bindindi það, sem bindindi er, en bannlagaólag það, sem bannlagaólán er.

Hv. þm. Borgf. staðhæfði, að drykkjuskapur hefði mikið minnkað í landinu við tilkomu bannlaganna. Ég geri ráð fyrir, að þessi staðhæfing sé rétt að því er snertir visst tímabil, en hvort það á við nú eins og fyrir fjórum, fimm árum eða meir, það dreg ég mjög í efa. Fyrir þremur til fjórum árum var lítið farið að heyrast getið um heimabrugg, en nú ganga þær sögur fjöllunum hærra, að alstaðar sé bruggað í sveitunum. Það er t. d. sagt, að í einum hreppi í Mýrasýslu sé bruggað á 12 bæjum. Sama er reynslan í öðrum bannlöndum. Í Noregi var gerð athugun á þessu rétt áður en banninu var sleppt, í einu byggðarlagi, þar sem voru 22 býli og reyndist við rannsóknina vera bruggað á 17 býlum. Og þó hv. þm. Borgf. vilji kannske segja sem svo, að þetta sé tilbúningur, þá sýna þær uppgötvanir, sem lögreglan hér smátt og smátt gerir, að hér er um að ræða meira en lítið heimabrugg.

Ég vil eindregið mótmæla hv. þm. Borgf., er hann hafði eftir mér, að ég hefði talað um bölvun bindindisstarfseminnar. Það fer fjarri því, að ég segði það nokkursstaðar í ræðu minni, ég talaði ekki einu sinni um bölvun bannsins, hvað þá um bölvun bindindisins, en ég kann að hafa sagt, að það hefði leitt af banninu, að bölvun drykkjuskaparins hafi ekki minnkað. Hv. þm. segir aftur á móti, að drykkjuskapurinn hafi minnkað, ég skal láta svo vera, það þýðir ekki að deila um, hvort hér sé klippt eða skorið, en hvað er það, sem var og sem er drukkið? Áður var drukkið vín og sterkir drykkir, sem tilbúnir voru til neyzlu fyrir fólk og flutt var til landsins á heiðarlegan hátt, nú er að vísu smyglað inn drykkjarhæfum vínum, en til viðbótar er notað allskonar óþverri, svo sem landi, suðuspritt, iðnaðarspíritus, áttavitaspíritus og margskonar dropar og vökvar, sem menn leggja sér til munns til þess að seðja áfengislöngun sína. Hvað mikið er notað af öllu þessu veit enginn, en úr því áfengis er neytt á annað borð, þá verðum við hv. þm. Borgf. vonandi sammála um það, að betra sé að menn drekki það, sem tilbúið er og ætlað til neyzlu heldur en það, sem ætlað er til annara hluta, fyrir utan, hve það er ákaflega dapurlegt út af fyrir sig að horfa á það í lyfjabúðunum, að selt er suðuspritt, sem menn nota til drykkjar og gerir menn engu síður vitlausa en hreinn spíritus, en er þó miklu skaðlegra. Hv. þm. Borgf. sagði, að brennivínið hefði verið rekið burt af búðarborðunum með banninu og bindindinu. Já, það er rétt, brennivínið er útrekið úr sölubúðunum, en í stað þess hefir verið innleitt suðuspritt og landinn. Ég skal kannast við, að hér hafi aldrei verið hreint bann, en það var hér eins mikið hann og hægt er að framkvæma með lögum, áður en Spánarvínaundanþágan kom til; en hvar í veröldinni er hreint bann eða hefir verið, það hefir hvergi verið, hvorki í Bandaríkjunum, hjá Finnum né Norðmönnum. Það hefir hvergi verið hægt að koma á eða viðhalda fullkomnu banni, alstaðar hefir þróazt lögbrotastarfsemi, sem fundið hefir einhverjar krókaleiðir til þess að seðja vínlöngunina, og þá kemur að því, sem ég sagði áðan, að bannið útilokar ekki áfengið.

Ég mótmælti því áðan, að ég hefði í fyrri ræðu minni uppnefnt alla bindindismenn í landinu. Hv. þm. Borgf. vissi vel um tilefni þess, sem ég sagði í fyrri ræðu minni, það tilefni voru þær árásir, sem gerðar voru á okkur flm. þessa frv. í málgagni templara. Ég sagði ekki, að allir bindindismenn í landinu verðskulduðu það nafn, sem ég nefndi. Það eru vissir menn í landinu, sem ég álít, að séu réttnefndir því heiti.

Þá kom hv. þm. Borgf. með þá kynlegu fullyrðingu, að meðan bannið var fullkomið hér, hefði tekizt að halda drykkjufýsn manna í skefjum. Hann tvítók þetta í ræðu sinni og ég skrifaði það upp eftir honum. Sé þetta einlæg sannfæring hans og haldi hann þetta í fullri alvöru, þá skal ég fyrirgefa honum svo að segja allt, sem hann hefir sagt rangt í minn garð og aðrar fjarstæður, sem hann hefir haldið fram. (PO: Hv. þm. þarf ekkert að afsaka). Þetta staðfestir það, sem ég sagði, að hvorki hv. þm. Borgf. né hv. þm. Str. hafa nokkurt vit á því að dæma um það efni, sem þeir eru að tala um. Hv. þm. Borgf. tók það illa upp fyrir mér, að ég sagði honum þetta, og sagði, að ég þættist geta dregið menn í dilka eftir því, hvort þeir hefðu vit eða ekki vit á hlutunum, en þessi skýlausa yfirlýsing hans sýnir, að hann er alls ófróður um það, sem gerist í landinu hvað vínnautn snertir, hann lifir í sinni barnatrú, hann er sjálfur mjög fjarri áfengi, hann hvorki neytir þess né býður það öðrum, en hvað heldur hv. þm., að hann fengi marga menn til þess að skrifa undir yfirlýsingu um það með sér, að það hafi tekizt með bannlögunum að halda áfengislöngun manna í landinu nokkurntíma í skefjum, ef menn vildu segja sannleikann í þessu máli? Það kom líka síðar fram í ræðu hv. þm. Borgf., að hann játaði sjálfur, að menn eins og hann væru lítið dómbærir um skaðsemi þess ástands, sem nú ríkir, eftir að hann var með mörgum orðum búinn að átelja mig fyrir að draga það í efa, að hann og hv. þm. Str. hefðu aðstöðu til þess að þekkja þessa hluti. - Það kom fram í ræðu hv. þm. G.-K., að eftir neyzlu sódavatns hér á landi mætti fara nærri um sjússana, sem drukknir eru hér. (PO: Nú, voru það sjússarnir, sem hv. þm. átti við, að ég þekkti ekki?). Hv. þm. er búinn að staðfesta ókunnugleika sinn í þessum efnum, eða heldur hann, að ekki séu drukknir hér þessir sjússar, sem hv. þm. G.-K. lýsti? (PO: Hv. þm. vildi kannske útskýra þetta orð, eða er það íslenzka?) Ég skal stafa orðið fyrir hv. þm. s-j-ú-s-s-a-r, og merkir blöndu af whisky og sódavatni. Ég veit, að það er ekki góð íslenzka, en það hefir verið brúkað hér í hv. þd. af öðrum en mér, og ég tel mér því heimilt að hafa það eftir.

Þá gerðist hv. þm. mjög fjölorður um, hvað skoðanir okkar, sem flyttum frv., stönguðust mjög á í þessu efni. Einn flytti frv., sagði hann, út af þessu og annar út af hinu. Það getur náttúrlega verið, að bæði við og aðrir höfum mismunandi skoðanir á hinum mismunandi atriðum, sem koma til greina. En það er ein meginhugsun, sem sameinar ekki aðeins okkur, heldur alla, sem álíta ástandið lítt þolandi eins og það er, og hún er sú, eins og margsinnis hefir verið kveðið upp með, að bannlögin geri langt frá því það gagn, sem þeim var ætlað, og geri heldur stórkostlegt ógagn. Í þessu efni stangast skoðanir flutningsm. ekki neitt á.

Þá fór hv. þm. að lesa sig fram úr frv., og af því, að þar eru settar hömlur um sölu á víni til ófullveðja manna o. s. frv., þá vildi hann halda því fram, að við værum komnir í öfuga aðstöðu við sjálfa okkur. Þetta sýnir, hvað hv. þm. er lítið kunnugur áfengislögum eða reglum um sölu á áfengi annarsstaðar. Það er ekki mikið bannland, mesta whiskyland heimsins, Skotland, en þar eru mjög greinileg takmörk um sölu áfengra drykkja. Það er ekki nema vissan tíma dagsins, sem sala áfengis er leyfð á veitingastöðum. Það er óþarfi að fara að lýsa því hér, en flestir ferðamenn, sem þangað hafa komið, munu kannast við þetta. Við, sem flytjum frv., erum því ekki í neinni andstöðu við sjálfa okkur, þó við með þessum ákvæðum viljum setja hömlur í veg fyrir óhóflega vínsölu. Og sama er að segja um þau ákvæði frv., þar sem talað er um sektir fyrir ölvun á almannafæri og fyrir ölvun embættismanna og starfsmanna, að þau koma ekkert í bága við þær skoðanir yfirleitt, að þetta bann hér á landi sé óviðunandi. Það er ekki hægt fyrir hv. þm. að halda því fram, að við viljum veita stórflóði af víni inn í landið án takmarkana og eftirlits með sölu. Við höfum þvert á móti gert mjög ýtarlegar till. um það, að varlega verði farið, till., sem hv. þm. hefir aðgang til að endurskoða og lagfæra eftir því, sem honum þykir rétt.

Það er þess vegna alls ekki vert fyrir hv. þm. að beita þeirri bardagaaðferð í þessu máli, að snúa út úr ummælum andstæðinga sinna og leggja verri skilning í till. þeirra en nauðsynlegt er. Þar sem ég talaði um, að hreinar línur þyrfti að skapa, þá átti ég við það ófarnaðarástand, sem er, og eins og svo margir hafa bent á, að það er svo að segja ekkert bann orðið í landinu. Það verður varla sagt, að línurnar geti verið óhreinni en svo, að þegar áfengislöggjöf þjóðarinnar er ströng og viðurlögin ákaflega mikil, svo að þeir, sem brjóta gegn henni, eru jafnvel settir á bekk með manndrápurum, - á „letigarðinum“, Litla-Hrauni, mun mega finna dæmi þessa -, þá skuli um leið og slík löggjöf er við liði, áfengi í öllum mögulegum myndum vera fáanlegt og búið til víðsvegar í landinu, til þess að selja og drekka. Ég veit ekki, hvað hv. þm. gerir litlar kröfur til þess að l. sé hlýtt í landinu, en þær geta varla verið minni en hann gerir, hvað áfengislöggjöfina snertir. Við, sem flytjum frv. til breyt. á þessu ástandi, könnumst við, að við þetta er ekki búandi eins og er. Og eins og ég hefi áður sagt, þá eru allar fullyrðingar um það, að minna hafi verið drukkið síðan bannið kom en áður, á sandi byggðar.

Hv. þm. Str. var að tala um það, hver sér virtist vera þungamiðja í þeirri aðstöðu, sem ég hefði tekið til bannmálanna. Þeirri þungamiðju er stuttlýst, og ég drap raunar á hana í fyrri ræðu minni. Ég er þeirrar sannfæringar, að bindindismálum þessa lands stafi hreint og beint voði af því ástandi, sem bannlögunum fylgja. Og þess vegna álít ég vegna bindindisstarfseminnar og æskulýðsins í landinu, að það þurfi að skapa hreinar línur. Yfirleitt álít ég, að sú afstaða, sem þjóðin tekur til áfengislöggjafar, eigi að mestu að miðast við það, hvað muni verða hinni uppvaxandi kynslóð fyrir beztu, þegar til lengdar lætur. Þeir, sem komnir eru á fullorðins árin, eru margir hverjir búnir að hlaupa af sér hornin, ef svo mætti að orði komast, og standa annaðhvort sterkir eða veikir á svellinu gagnvart áfenginu, þannig að breytt löggjöf mundi e. t. v. ekki hafa svo mikið að segja fyrir þá. En það er hin uppvaxandi kynslóð, sem maður þarf að hafa fyrir augum í þessu máli. Reynslan hefir sýnt það bæði hér og annarsstaðar, þar sem bannlög hafa verið, að áfengislönguninni verður á engan hátt útrýmt, og áfengisnautninni er fullnægt á ýmsan hátt, jafnvel með mjög ógeðslegum drykkjum, eins og áður hefir verið bent á. Hvort mundi nú vera hollara fyrir uppvaxandi kynslóð að alast upp við skynsamlega áfengislöggjöf, þar sem sterkir drykkir væru leyfðir, en með þeim takmörkunum, sem heilbrigð skynsemi segir til um, að séu framkvæmanlegar og réttar, eða að alast upp við þetta bannlagaslitur, sem nú er, og öll þau óþrif, sem því fylgir. Ég er þeirrar skoðunar, að með því ástandi, sem nú er, sé ekki nokkurt öryggi fengið fyrir því, að óspilltir unglingar verði ekki fyrir einmitt mjög sterkum og tælandi áhrifum til þess að leiðast út í vínnautn, með því að Spánarvínin eru í landinu. Þau eru gómsæt og hentug til byrjunar, og svo er hitt við hendina til framhalds. Ef hv. þm. vildi nú athuga þetta ástand ofan í kjölinn, þá gæti ég trúað því, að hann yrði a. m. k. með sjálfum sér efablandinn, hvort rétt væri af honum að geisast svo mjög á móti breyttri áfengislöggjöf eins og hann gerir nú. Við stöndum gagnvart þeirri staðreynd, að þrátt fyrir öll lagaboð í þessu efni þá verði hættunni ekki útrýmt. Það mætti líkja þessu við siglingaleið. Ég vil heldur, og það munu flestir vilja, stefna fleyi mínu um siglingaleiðir, þar sem brim og boðar sjást, heldur en að eiga á hættu launboða og blindsker þar sem sízt varir. Það virðist helzt mega líkja þessu bannlagaástandi, sem nú er í landinu, við það, að æskulýð landsins sé stefnt út á þá siglingaleið, þar sem hættan er lítt sjáanleg, en blindsker og launboðar geta grandað fari og áhöfn áður en varir. Framtíðin leiðir það í ljós, hver réttara hefir fyrir sér í þessu máli. Ég vildi óska þess, bindindisins vegna, að þeim, sem enn þá trúa á það, að bannlögin komi hér að gagni, verði að trú sinni, en ég er því miður ekki trúaður á það sjálfur og þess vegna vil ég breyta til áður en spillingin hefir grafið meira um sig.