03.04.1933
Neðri deild: 43. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 556 í C-deild Alþingistíðinda. (4711)

142. mál, bráðabyrgðarbreytingu nokkurra laga

Flm. (Haraldur Guðmundsson) [óyfirl.]:

Lög þau, sem hér ræðir um, falla úr gildi við lok þessa árs, en stj. hefir lagt fram frv. um framlengingu á þeim. Í l. um einkasölu á tóbaki er lagt svo fyrir, að arðinum skuli skipt milli byggingar- og landnámssjóðs og byggingarsjóðs verkamanna. Við flm. lítum svo á, að óhæfa sé að svipta byggingarsjóð verkamanna og byggingar- og landnámssjóð þessum tekjum, og því er í frv. ætlazt til, að tekjunum verði varið eins og upphaflega var ákveðið. Hinsvegar höfum við ekki hér lagt til, að ákvæðin um skemmtanaskatt verði niður felld úr bráðabirgða1., enda er réttara að láta hann ganga til kreppuráðstafana en í ríkissjóð, meðan honum er ekki varið samkv. hinum upphaflega tilgangi.

Ég vil leggja til, að þessu frv. verði líka vísað til kreppun., því að öll þessi frv. hanga svo saman, að þau verða varla skilin að. Það stendur t. d. í nánu sambandi við frv. um stóríbúða- og háleiguskatt, sem rétt núna var vísað til kreppunefndar.