27.02.1933
Neðri deild: 11. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 647 í B-deild Alþingistíðinda. (474)
4. mál, bifreiðaskatt og fl.
Hannes Jónsson:
Það er slæmt þegar brtt. koma fram svo seint, að n. getur ekki athugað þær, og ekki sízt um slíkar till. sem þessar, þar sem gera má ráð fyrir, að sumar kunni að vera varasamar. Vil ég því mælast til, að hv. flm. taki till. sínar aftur til 3. umr., svo að n. geti athugað þær. Ef hann verður við þeim tilmælum, þá fjölyrði ég ekki frekar um þær nú.
Um frv. í heild sinni er ég búinn að segja það, sem nauðsynlegt er á þessu stigi málsins. Það er svo kunnugt sem bezt má verða, því að um það urðu miklar umr. á síðasta þingi. Það er ekki undarlegt, þótt raddir heyrist á móti þessu frv. Það er svo um flest tekjuaukalög, að þau mæta einhverjum andmælum, og er jafnan sagt, að þau stefni í öfuga átt. Og það er erfitt að finna leið í þeim efnum, sem allir eru sammála um.