27.02.1933
Efri deild: 11. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 582 í C-deild Alþingistíðinda. (4770)

41. mál, eignarnámsheimild á afnotarétti landsvæðis úr Garðalandi

Flm. (Bjarni Snæbjörnsson) [óyfirl.]:

Hv. 5. landsk. hefir nú lýst því yfir, að hann vilji að einhverju leyti bæta fyrir gerðir sínar í þessu máli. En það finnst mér einkennilegt, að hann skuli vilja bæta fyrir þær á þann hátt, að koma með nýtt frv. inn á þingið um, að Hafnarfjarðarkaupstaður fái ræktanlegt land tekið frá öðrum, en láta þá sleppa, sem með órétti hafa fengið það land, sem kaupstaðnum bar. Þetta er þeim mun undarlegra, þegar þess er gætt, að allir ábúendurnir kringum Hafnarfjörð, sem landið yrði að taka af, eru bláfátækir menn, sem alls ekki má skerða lönd hjá.

Þá var þessi hv. þm. að hæla sér af því, hversu mikinn greiða hann hefði oft gert Hafnfirðingum. Það er í sjálfu sér ekkert undarlegt, þó að hann geri þetta sjálfur, því að það munu tæplega aðrir verða til þess, þar sem vitanlegt er, að hann hefir aldrei neitt gert, hvorki fyrir Hafnarfjörð né Hafnfirðinga, þvert á móti verið þeim andstæður í málum, eins og t. d. því, sem hér er um að ræða.

Út af ummælum hv. þm. um land Eyjólfs Jóhannssonar framkv.stj., að gengið hafi verið framhjá því í frv. þessu, vil ég taka það fram, að ég lít svo á, að réttur hans til landsins sé fyllri en réttur þeirra Hermanns og Tryggva til landa þeirra, er þeir hafa fengið. Þó er það svo, að Hafnfirðingar myndu verða þakklátir, ef hægt yrði að fá það land líka handa bænum. Enda stendur í frv., að vera megi, að um fleiri lönd þarna sé að ræða.

Að það sé vegna kunningsskapar við Eyjólf Jóhannsson, að land hans er ekki nefnt í frv., er hin mesta fjarstæða, því að ég minnist þess ekki að hafa talað eitt einasta orð við þann mann.

Þá minntist hv. 5. landsk. á það tjón, sem Garðahreppur myndi hafa liðið við það, að lönd þessi hefðu fallið Hafnarfirði, því að ábúendur þeirra greiði 400 kr. á ári til hreppsins. Þetta hefði mátt tryggja með samningum milli Hafnarfjarðar og Garðahrepps. Annars held ég, að flestir sanngjarnir menn líti svo á, að úr því að hreppsbúar sjálfir fengu ekki lönd þessi, þá ættu þó menn búsettir í sókninni að ganga fyrir með að fá þau.

Það vill nú svo vel til, að ég hefi sjálfur átt tal um þetta mál við Pálma Einarsson ráðunaut, sem hv. 5. landsk. er að vitna til, og hann hefir sagt mér, að ef hann hefði mátt ráða, þá hefði hann látið Hafnarfjarðarbæ fá land það, sem Hermann og Tryggvi hafa fengið. En í stað þess fær bærinn alóræktanlegasta landið, sem til var í landi því, sem til skipta kom. Saga þess máls er þannig, að biskup landsins, sem þetta mál heyrir undir, hefir alltaf verið því mótfallinn að láta jörðina af hendi. Hann hafði hugsað sér að koma þar á rekstri, í einhverju góðgerðaskyni að mig minnir, annaðhvort barnaheimili, eða e. t. v. einhverri fræðslustofnun, vegna þess að þetta var merkur staður og þar höfðu setið merkir menn. Að Hafnarfjarðarkaupstaður hefir ekki fengið þetta land, stafar ekki af því, að hann hafi ekki margsinnis óskað eftir því, heldur er það vegna þess, að stjórnirnar, sem að völdum hafa setið, fóru eftir tillögum biskups. En nú, þegar ekkert var lengur farið eftir því, hvað biskup vildi í þessu máli, og farið var að skipta landinu upp, þá fór Hafnarfjörður strax á stúfana. Það er því alls ekki rétt, að Hafnarfjörður hafi ekki alltaf haft opin augu fyrir þessu máli.

Ef það er rétt, að Pálmi Einarsson hafi sagt um land það, sem hv. fyrrv. dómsmrh. ætlaði okkur Hafnfirðingum, að það væri heppilegt til kartöfluræktar, þá skil ég ekki skýrslu þá, sem hann hefir hér gefið um Garðaland.

Þá kem ég að spurningum þeim, sem hv. 5 landsk. lagði fyrir mig. Hann spurði m. a., til hvers Hafnarfjörður ætlaði að nota þetta land, ef hann fengi það. Ég er ekki í neinum vafa um, að Hafnarfjörður mundi nota það á þann hátt, sem hentugastur þætti til þess, að það kæmi íbúunum að sem mestu gagni, og þá fyrst og fremst þeim, sem mesta þörf hafa fyrir atvinnu og fátækastir eru. Það hefir verið talið, að hv. 5. landsk. hefði talsverðar mætur á sócíalistum. Það vill nú svo til, að þeir hafa meiri hl. í bæjarstj. Hafnarfjarðar. Ég efast ekki um, að sá meiri hl. mundi úthluta landinu til fátæklinga og atvinnuleysingja, en ekki til neinna „burgeisa“, og ég býst ekki við, að hv. 5. landsk. efist um það heldur. Mér finnst óþarfi að óttast það, þar sem bæjarfélagið er á annað borð sjálfs sín ráðandi, að það hafi ekki vit á að nota þetta land á þann hátt, sem heppilegast verður, ef það fær umráð yfir því.

Þá kemur önnur spurningin, sem var um það, hvað ég búist við, að fengist mikið af kartöflum af þessu landi. Það má nú segja, að það er fleira matur en flesk. Það má fleira rækta til nytja hér á voru landi heldur en kartöflur. Það má t. d. rækta gras, og þetta land mun til þess ætlað.

Ég verð að segja, að það eru hrein ósannindi, að Hafnfirðingar hafi ekki gert það, sem þeir hafa getað, til þess að rækta það land, sem þeir hafa haft afnotarétt á. Þeir hafa ræktað land, sem ég veit, að bændum myndi ekki detta í hug að hreyfa við.

Eftir því, sem fróður maður hefir sagt mér um, hvað hafa megi upp úr landinu, sem lögreglustjórinn fékk, þá má á því afla 1200 hesta af töðu og fóðra á því 30 kýr. Og ég verð að segja, að það er meira en lítill ávinningur að fá land þetta, sem er 80 dagsláttur, fyrir 400 krónur.

Þá kem ég að leigusamningnum. Hv. 5. landsk. segir, að ekki séu betri þeir leigusamningar, sem valdhafar Reykjavíkur og Hafnarfjarðar hafa gert. Þetta vill oft brenna við hjá þessum hv. þm. Það er eins og sagt var á þinginu í fyrra, að hann þarf alltaf að miða við það versta, sem hann getur fundið hjá öðrum, til þess að finna eitthvað samrímanlegt við það, sem hann vill sjálfur vera láta.

Að leigutaka sé bannað í samningnum að selja eða veðsetja leiguréttinn, eru hreinustu ósannindi. Í 8. gr. leigusamningsins stendur þvert á móti, að leigutaka er „... heimilt að selja leigurétt sinn, veðsetja hann eða ráðstafa honum á annan hátt, þó að áskildu samþykki umboðsvaldsins“.

Ég held ég hafi þá svarað því, sem hv. 5. landsk. beindi til mín. Ég hefi bent á, hvers vegna Hafnfirðingar ruku einmitt nú upp til handa og fóta með að fá þetta land, eins og hv. þm. orðaði það. Það var hreint og beint af því, að fyrrv. stjórnir hafa virt að einhverju vilja þeirra, sem fyrst og fremst hafa með mál kirkjunnar að gera, eins og biskupsins. En þegar ekki var lengur neitt gert með það, hvað hann vildi, og byrjað að skipta upp jörðinni, þá var auðvitað tími til kominn að hlaupa upp til handa og fóta, og það gerðu Hafnfirðingar á augabragði. Annars býst ég við, að þetta hafi allt átt að fara leynt og skiptin að komast í kring áður en Hafnfirðingar vissu um, hvað til stóð.

Hvað snertir hagsmuni Garðahrepps, þá er það mín persónulega skoðun, að það væri það bezta, bæði fyrir hreppinn og Hafnarfjörð, að Garðahverfið rynni undir Hafnarfjarðarkaupstað. Ég er ekkert hræddur við þessi miklu sveitarþyngsli þar, sem hv. þm. var að tala um, því yfirleitt búa þarna sæmilega efnum búnir menn, og fátækraframfæri er fremur lítið í hreppnum.

Að lokum skal ég geta þess, að komi hér fram í frv.formi ráðstafanir í þá átt, að Hafnarfjörður geti fengið meira af ræktanlegu landi heldur en hann nú hefir umráð yfir, þá mun ég taka því með þökkum og greiða því atkv., svo framarlega að ekki sé með því framið ranglæti gagnvart öðrum fátækum mönnum. En þó slíkt frv. komi fram, þá réttlætti það út af fyrir sig ekki það ranglæti, sem Hafnfirðingar hafa orðið fyrir. Þeir eiga sama rétt á því landi, sem hér er um að ræða, þó þeir fengju land annarsstaðar. Þess vegna get ég ekki verið með slíku frv. undir þeirri forsendu, að það eigi að réttlæta verk það, sem hv. fyrrv. dómsmrh. framdi