27.02.1933
Efri deild: 11. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 593 í C-deild Alþingistíðinda. (4773)
41. mál, eignarnámsheimild á afnotarétti landsvæðis úr Garðalandi
Jónas Jónsson:
Nú skilst mér, að biskup sé orðinn þungamiðjan í þessu máli hjá hv. flm. Ég get ekki annað en minnzt á það aftur, að meðan biskupinn heldur verndarhendi yfir landinu og vill hafa það í órækt, þá finnst hv. þm. sjálfsagt, að svo skuli vera, og alveg fráleitt fyrir bæjarstj. Hafnarfj. að óska eftir að fá landið. Ef ríkisstj. hefði alltaf verið sammála biskupinum í þessu efni, mundi hv. þm. ekki sýnast geta komið til mála fyrir Hafnarfj. að óska eftir landinu. Þá hefði verið sjálfsagt, að mógrafirnar væru ennþá mógrafir og mýri enn mýri. En úr því þessi skoðun kom fram, sem um stundarsakir ríkti hjá stj., að landið ætti að rækta, og skilningsskortur biskupsins réð ekki lengur, þá fyrst sér hv. þm. ástæðu til þess að vilja taka landið; sem sagt, meðan ekki er hreyft við landinu, þá sjá þeir enga ástæðu til að óska eftir að fá það, en þegar farið er að rækta það og vinna að stofnun sjálfstæðra býla í Garðahreppi, þá geta þeir ómögulega setið hjá. En hér er enginn áhugi á bak við fremur en hjá flokksbræðrum hv. þm. hér í Rvík. Ekki vilja þeir rækta, þó hér sé mikið landshungur og þó bærinn eigi í Fossvogi og víðar mikið flæmi af ræktunarhæfu landi. Íhaldið stenzt ekki reiðara hér en ef á það er minnzt að fara að rækta þetta land. Menn, sem eru á sama kulturstigi, eða öllu heldur kulturleysisstigi og hv. þm., þeir mega ekki heyra ræktun á þessu landi nefnda, þó þúsundir af börnum í bænum vanti mjólk sér til viðurværis, og þó sócílalistar minnist á þetta annaðhvert ár, vilji þá láta bæinn rækta land og setja á stofn kúabú, þá verður aldrei neitt úr því.
Annars var þetta hálfþunn afsökun hjá hv. þm., að biskup hefði hugsað sér, að þarna rísi upp annaðhvort menningar- eða mannúðarstofnun. Kannske hugmyndin hafi verið að reisa þarna fábjánahælið. En fyrst hugsjónin hvarflar alla leið frá háskóla í fávitahæli, þá virðist harla óskiljanleg virðing hv. þm. á stjórnsemi biskups.
Þá var það harla óviðfelldið, að hv. þm. skyldi leyfa sér að viðhafa þau ummæli, sem hann hafði um Garðakirkju, þetta mikla þrekvirki Þórarins Böðvarssonar, sem lét byggja hana. Það átak nálgast að vera kraftaverk á þeim tíma, verk, sem hann óskaði, að haldið yrði við sem lengst og sem síðari kynslóðir hafa dáðst að og viðurkennt vera listaverk, það leyfir hv. þm. sér að kalla ljótustu kirkju á landinu. (BSn: Ég sagði eina af ljótustu kirkjum á landinu). Svo mikil er respekt hv. þm. fyrir þessari frægu byggingu.
Það hefir komið ljóst fram í ræðu hv. flm., að meðan Garðaland var óhreyft, hefir hvorki biskupi né hv. flm. dottið í hug að nota það til neins. Fyrst nú, þegar búið er að láta það á leigu til manna, sem taka það til ræktunar, finnur hv. þm. ástæðu fyrir sína kjósendur til að girnast landið. Ég skal ekki dæma um, hvorn þeirra, hann eða biskupinn ber hærra, biskupinn, sem vill halda landinu í órækt, eða hv. þm., sem langar í það fyrst, er hann sér, að aðrir eiga að fá það. Loks í þriðju ræðu fer hann að tala um, að þessu landi megi skipta í 9 býli. Hverskonar býli eiga það að vera, og hverjir eiga að búa þar? Eiga það að vera menn, sem eiga heima innan Garðahrepps, eða eiga einhverjir Hafnfirðingar að hafa þarna útibú? Annars hygg ég, að hv. þm. hafi, þegar hann fór að tala um sjálfstæðu býlin, eitthvað flaskað á vilja meiri hl. bæjarstj. Hafnarfj. og talað þar frá eigin brjósti, því það hefir hingað til verið stefna sócíalista að láta bæina sjálfa starfrækja ræktun á sínu landi. Hið rétta mun vera, að hv. þm. hefir aldrei spurt húsbændur sína, sócíalistana, hvað eigi að gera með þetta land, heldur eru það hans eigin skoðanir, sem hann er að túlka. Hann vill þarna stofna útibú handa einstökum mönnum í Hafnarfirði, þar sem íbúar Garðahrepps óska, að upp rísi sjálfstæð býli, og ekki er um að villast, að verður, ef samningar þeir, sem gerðir hafa verið, fá að standa.
Hv. þm. þarf ekki að verða hissa, þó það þyki skrítið, ef íhaldsmenn ætla að fara að þjóðnýta fyrir sócíalista þetta land. Ég vonast til þess, þegar honum er bent á meðferð flokksbræðra hans hér í Rvík á landinu í Fossvogi, þá skilji hann það, að ekki er borin mikil respekt fyrir áhuga þeirra fyrir ræktunarstarfsemi Hafnarfjarðarkaupstaðar. Ég hygg, ef frv. verður samþ., þá muni hv. þm. strax og hann nær meiri hl. í bæjarstj. í Hafnarfirði fara með þetta land eins og Hvaleyrina, sem leigð var á sínum tíma syni ríkasta mannsins í Hafnarfirði. (BSn: Sú eign kom bæjarstj. ekki við). Hv. þm. kemst ekki út frá því, að Hafnarfjarðarbær á helming þessarar eignar, og fátækir bæjarbúar geta ekki fengið þar svo mikið sem gróðurlausan mel til að rækta, hvað þá meira, svo fast heldur íhaldið í Hafnarfirði um þetta land, með því að leigja það örfáum gæðingum til lífstíðar fyrir óheyrilega lágt gjald, land, sem væri bænum nægilega stórt til eigin nota í næstu framtíð, ef réttilega væri með farið. Hinn helmingur Hvaleyrarlandsins hefir, eins og upplýst hefir verið, verið leigður einstökum manni til 50 ára fyrir sama sem ekkert. Það eru því tvær gullhúfur hvor upp af annari, þessar ráðstafanir á Hvaleyrarlandinu. Það sýnist því öllu nær fyrir Hafnarfjarðarkaupstað að bera hér niður heldur en vera að seilast inn í annan hrepp, og væntanlega eru ekki helgari þeir ábúðarsamningar, sem með óskynsemi eru gerðir, heldur en hinir, sem gerðir eru með framsýni og í anda landslaga.