27.02.1933
Efri deild: 11. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 596 í C-deild Alþingistíðinda. (4775)

41. mál, eignarnámsheimild á afnotarétti landsvæðis úr Garðalandi

Atvmrh. (Þorsteinn Briem):

Hv. 4. landsk. spurði, hvort vera mundi heimild í lögum fyrir þeim leigusamningum, sem frv. það, sem hér er til umr., leggur til, að ógiltir verði, og vitnaði hann í jarðræktarlögin því áliti sínu til staðfestu, að samningunum mundi hægt að rifta með þál.

Út af þessari fyrirspurn hv. þm. vil ég benda á, að til eru eldri lög en jarðræktarlögin, og veita þau heimild til að leigja lönd þjóðjarða og kirkjujarða til 50 ára í senn. Þar er ekkert tiltekið um það, hve stór lönd hver einstaklingur megi fá á leigu. Ég býst því við, að umræddum leigusamningi verði ekki riftað nema sérstök lagaheimild komi til.