27.02.1933
Efri deild: 11. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 596 í C-deild Alþingistíðinda. (4776)

41. mál, eignarnámsheimild á afnotarétti landsvæðis úr Garðalandi

Jón Baldvinsson:

Það fær ekki dulizt, að hv. 5. landsk. er kominn í klípu út af aðgerðum sínum í fyrravor, sem gengu í berhögg við yfirlýstan vilja Alþingis, og meira að segja einnig ummæli hans sjálfs á því þingi. (JónasJ: O-nei-nei). Ég veit ekki einu sinni, hvort nokkur trygging er fyrir því, að land þetta verði ræktað og á því byggt. (JónasJ: Hvernig er hægt að hafa upp úr landinu á annan hátt?). Þeir gætu haft kúabú í Reykjavík. (JónasJ: Þeir mundu þá rækta landið). Það má vera: En þegar á það er lítið, að í Hafnarfirði er mikil þörf á aukinni mjólkurframleiðslu og þar af leiðandi vöntun á ræktanlegu landi, þá víkur málinu öðruvísi við. Sigurður Sigurðsson búnaðarmálastjóri hefir sagt, að Hafnarfjörður sé verst stæður allra kaupstaða á landinu í þeim efnum; þá hefði hv. þm. átt að meta þær ástæður meira en hagsmuni einstakra manna. Í stað þess hefir hann hagað sér eins og versti íhaldsmaður, enda hefir hann nú varið sig með því að bera sig saman við íhaldið. En í mínum augum er það engin vörn. Hann talaði um, að þetta land hefði verið leigt einstökum mönnum í þeim tilgangi að stofna til sjálfstæðra býla í sveitum og minntist á byggingar- og landnámssjóð í því sambandi, en ég vil benda hv. þm. á, að um líkt leyti var fyrir þinginu frv. frá Alþfl. um stofnun smábýla í sveitunum, en ég man ekki betur en hv. þm. og hans flokkur væru á móti því frv. En nú hefir framsóknarmönnum snúizt hugur, ef nokkuð má ráða af blaði þeirra, Tímanum. Þar er næstum í hverju tölublaði í vetur talað um þessa till., sem upphaflega er frá Alþfl., um samvinnubúskap í sveitunum. Framsókn hefir fundið, að fólkið í sveitunum fylgdi þessari till. um sveitaþorp og samvinnubúskap.

Ég treysti meiri hl. í bæjarstj. Hafnarfj. vel til þess að fara með þetta land á þann hátt, að sem bezt verði alþýðu í bænum til heilla.

Hv. þm. þótti ég ekki vel kristilegur, að vilja láta prestinn búa í Hafnarfirði, en ekki í Görðum. En hafi hann sjálfur þá skoðun, að kristilegra sé að búa í sveit heldur en kaupstað, hvers vegna yfirgaf hann þá sveitina og fluttist til kaupstaðarins? (JónasJ: Ég er ekki prestur). Þm. var einu sinni æðsti prestur.

Þá var hv. þm. að hreyfa því, að við jafnaðarmenn hér í Rvík hefðum ekki áhuga fyrir bæjarræktun í Fossvogi og hreyfðum því ekki nema lítillega annaðhvert ár. En þetta er rangt hjá hv. þm.; fyrir þessu máli er stöðugt barizt af Alþýðufl.mönnum í bæjarstj. Rvíkur. Hefir það komið greinilega fram í þessu máli, að ekki er eins langt á milli þeirra hv. 5. landsk. og hv. þm. G.-K. eins og þeir báðir vilja vera játa, enda mun það mála sannast, að þeir eru í raun og veru hinir eindregnustu samherjar, þótt öðruvísi kunni að sýnast á yfirborðinu.