27.02.1933
Efri deild: 11. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 600 í C-deild Alþingistíðinda. (4781)

41. mál, eignarnámsheimild á afnotarétti landsvæðis úr Garðalandi

Magnús Torfason:

Það er einmitt þetta, sem skilur. Ég hefi sagt, að málið sé landbúnaðarmál og að ég treysti fullkomlega form. landbn. til að fjalla um það, en eins og hann sagði sjálfur einmitt í þessu, verðum við allshnm. að nota annara gleraugu til að skilja eitthvað í málinu. Ég hverf því ekki aftur með það, að málinu sé vísað til landbn.