01.06.1933
Efri deild: 86. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 614 í C-deild Alþingistíðinda. (4790)

41. mál, eignarnámsheimild á afnotarétti landsvæðis úr Garðalandi

Bjarni Snæbjörnsson [óyfirl.]:

Ég vildi byrja með örfáum orðum til hv. 2. landsk. Ég verð nú að segja það, að mig undra ekki undirtektir hans við þetta mál. Það er svo með þennan hv. þm., að hann hefir sett sig út til þess að gera lítið úr öllum þeim málum, sem ég hefi borið fram hér á þingi, og skil ég þá viðleitni hans svo, að hann álíti mig hættulegan keppinaut fyrir frambjóðanda flokks hans í Hafnarfirði, og vilji því reyna að gera sem minnst úr mér hér á Alþ. Það er einlægt svo, að þegar ég flyt frv., er snerta Hafnarfjörð, þá hefir þessi hv. þm. flutt annað frv. um sama efni, sem fer lengra en mitt. Svona var um Hafnarfjarðarveginn, síldarbræðslustöðina, og nú síðast þetta mál. En þetta er ein lægsta tegundin af kjósendaveiðum. Ekki svo að skilja, að ég láti mér ekki í léttu rúmi liggja, hvað hv. þm. segir um mig og málaflutning minn. En ég vil taka það fram til þess að fyrirbyggja misskilning, sem mér virtist koma fram hjá hv. 2. landsk., að um það land, sem hér ræðir um, hefir alltaf verið fullt samkomulag milli Hafnfirðinga og Garðhverfinga. Og Hafnfirðingum hefir aldrei komið til hugar að skerða rétt Garðhverfinga hið allra minnsta. Þeir hafa aldrei reynt að veikja atvinnumöguleika þeirra, heldur þvert á móti, þar sem Garðhverfingar hafa leyfi verkalýðsfélagsins til að vinna í Hafnarfirði sem innanbæjarmenn. Þá hafa Garðhverfingar fengið að senda börn sín á barnaskóla í Hafnarfirði, og ýmsra fleiri hlunninda hafa þeir notið þar.

En þegar Hafnfirðingar urðu varir við utanaðkomandi tilraunir til þess að ná tangarhaldi á jörðum þarna, þá þóttust þeir vera í sínum fulla rétti með að fara fram á þessa eignarnámsheimild sér til handa. Og ég tel víst, að flestir Hafnfirðingar muni sætta sig við þá afgreiðslu, sem hér verður höfð á þessu máli.

Frv. mitt fór fram á rúma 40 ha. af landi, en það land, sem hefir verið ætlað Bakka, er nálægt 20 ha. Landsvæðið er því samtals rúmir 65 ha., og samkv. till. hv. landbn. á annar helmingur þess að falla Hafnfirðingum í skaut, en hinn Garðhverfingum.

Allt þetta land er ágætlega ræktanlegt, svo að hvernig sem skipt yrði, hlytu Hafnfirðingar að fá gott land til ræktunar. - Viðvíkjandi því, sem hv. þm. sagði um afstöðu bæjarstj. í Hafnarfirði til þessa máls, þá skal ég taka það fram, að hún hefir ekki tekið afstöðu til annars frv. um þetta mál en þess, sem ég hefi borið fram. Ég á sæti í bæjarstj., og hafa hin frv. aldrei komið til umr. á fundum hennar. Hv. 2. landsk. getur ef til vill sagt sem svo, að úr því að bæjarstjóri hafi lýst sig hlynntan frv. hans, þá muni meiri hl. bæjarstj. vera það líka. En engin ályktun frá bæjarstj. liggur fyrir um það frv.

Mér þykir mjög gott í sjálfu sér, að þessi hv. þm. taki svona rækilega afstöðu til málefna, sem snerta kjördæmi mitt. En ég er hræddur um, að ástæðan til þess sé sú, sem ég gat um í upphafi ræðu minnar, og er þá áhugi hv. 2. landsk. fyrir Hafnfirðingum ekki mikils virði.