02.06.1933
Efri deild: 87. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 617 í C-deild Alþingistíðinda. (4796)

41. mál, eignarnámsheimild á afnotarétti landsvæðis úr Garðalandi

Frsm. (Pétur Magnússon):

Ég vildi aðeins skjóta því til hv. 2. þm. N.-M., hvort hann getur ekki komið með skrifl. brtt. á þessum fund:. Hann gerði í gær grein fyrir, að hverju leyti hann væri ósammála meiri hl. n., svo hv. d. ætti að eiga auðvelt með að átta sig á till. hans, og geri ég ráð fyrir, að hún mundi fúslega veita afbrigði fyrir hana. Annars geri ég þetta ekki að neinu kappsmáli.