28.02.1933
Efri deild: 12. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 621 í C-deild Alþingistíðinda. (4808)

46. mál, kaup á skuldum

Jón Þorláksson [óyfirl.]:

Ég get ekki annað en tekið undir ummæli hv. þm. Snæf., að þótt sjálfsagt sé góð meining með þessu frv., þá finnst mér, að það sé vanhugsað. Mér sýnist sem sé svo, að ef frv. verður lögleitt eða einhver svipuð ákvæði og það hefir inni að halda, þá hafi það í reyndinni aðeins eina afleiðingu, sem sé þá, að slíkar skuldir í þrotabúum eða dánarbúum, - þ. e. a. s. verzlunarskuldir, sem taka til nokkuð mikils fjölda manna og eru misjafnlega góðar, - yrðu óseljanlegar í einu lagi. Ég sé ekki, að frv. feli í sér neitt annað en bann gegn því, að skuldir séu seldar í einu lagi. Nú skal ég ekki segja um það út af fyrir sig, hvort ástæða er fyrir löggjöfina til að setja slík ákvæði, en ef ástæða þætti til að setja þau, þá er mikið hreinlegra að gera það með því að breyta löggjöfinni um meðferð þrota- og dánarbúa, svo að slík sala yrði ekki heimil. En fyrir gjaldendurna, sem eiga að borga skuldirnar, held ég ekki, að slík löggjöf eða afleiðing þessa frv. mundi. gera neinar verulegar breyt. Ég sé ekki mun á því fyrir þá, sem eiga að borga þessar skuldir, hvort eigendaskipti verða á kröfunum áður en gengið er að þeim.

Mér finnst eins og fyrir höfundi frv. hafi vakað einhver óljós hugsun um það, að finna einhverskonar bragð til að koma þessum skuldunautum inn undir nokkurskonar nauðasamningaákvæði, sem eins og kunnugt er er gert á þann hátt, að samið er um að greiða nokkurn hluta og jafnan hluta öllum af skuldum sínum. En ef sú er hugsunin, þá er sú gloppa í frv., að þessi tilgangur næst alls ekki, ef ekki verða eigendaskipti á skuldunum, en frv. eins og það er nú stendur mjög í vegi fyrir, að það geti orðið.

Ég fyrir mitt leyti get vel fallizt á, að frv. gangi til n. og fái þar nánari athugun, þótt mér sýnist sem sagt, að smíði þess hafi alveg mistekizt.