01.03.1933
Neðri deild: 13. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 652 í B-deild Alþingistíðinda. (481)
4. mál, bifreiðaskatt og fl.
Fors.- og fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson) [óyfirl.]:
Ég hefi áður lítilsháttar minnzt á brtt. á þskj. 58, um undanþágu fyrir bíla lækna og ljósmæðra til greiðslu á þungaskatti, og mælist ég til, að þær verði felldar. Sá skattur getur ekki orðið tilfinnanlegur fyrir hlutaðeigendur, en slíkar undanþágur eru mjög varhugaverðar.
Um brtt. á þskj. 64 er það að segja, að ekki er hægt að telja, að lágmark það, 750 I., sem getið er um í 1., sé of hátt, þegar tekið er tillit til, hve lítilli upphæð þetta nemur. En ég vil þó sætta mig við till. hv. fjhn. um að færa þetta lágmark niður í 500 1. Er þá hámarksupphæðin 20 kr., og sýnist varla taka því að eltast við að fá endurgreiddar lægri fjárhæðir.
Brtt. á þskj. 66 hefi ég áður mótmælt, og hv. frsm. fjhn. hefir einnig gert það mjög rækilega. Því hefir frá upphafi verið lýst yfir, að skattur þessi væri lagður á vegna veganna. Hann er því í eðli sínu engin kreppuráðstöfun og getur því þess vegna gilt til frambúðar. Það er vitanlega ekkert kreppumál að gera ráðstöfun til þess að leggja vegi. Og þótt kreppan hafi máske hjálpað til að koma þessu máli fram á síðasta þingi, þá hefir þó verið hér til áður bifreiðaskattur. Og þótt hann hafi hækkað vegna 1. frá síðasta þingi, þá er hann þó helmingi lægri hér enn en hann er víða í öðrum löndum. Um það verður ekki deilt, að vegaþörf er mikil hér á landi. Og fyrst þörf þykir fyrir slíkan skatt annarsstaðar vegna veganna, þá er þó þörfin áreiðanlega margfalt meiri hér. Og skatturinn er til þess ætlaður, að fyrir hann séu lagðir vegir, er létti flutningsþarfir landsmanna.
Hvað það atriði snertir, að dýrt sé að flytja mjólk og annað um Suðurlandsláglendið, þá er það vitanlega alveg rétt. En til þess var líka tekið tillit á síðasta þingi, þar sem samþ. var að deila til þeirra héraða 20 þús. kr. eftir ákvæðum atvmrh., til þess að létta þeim flutningana. Og stj. hefir í fjárlfrv. sínu fyrir 1934 gert ráð fyrir, að sama upphæð verði veitt það ár. Ætla ég, að það dugi til þess að draga að mestu úr þeim búsifjum, sem þessi héruð verða fyrir af skattinum. En eins og áður er tekið fram, þá á þessi skattur að ganga til þess að leggja vegi og bæta gamla vegi. Og allir, sem vilja að það sé gert, ættu að vera sammála um, að þessi skattur standi lengi. Einkum ætti þeim, sem á það mál líta frá sjónarmiði sveitanna, að vera kunnugt um það, hve þörfin er brýn fyrir hætta vegi. Þeir ættu því að styðja að því, að þessi skattur verði látinn standa, en verði ekki niður felldur.