30.03.1933
Efri deild: 38. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 769 í C-deild Alþingistíðinda. (4877)

135. mál, stóríbúðaskattur

Flm. (Jónas Jónsson):

Þetta mál lá fyrir hv. Nd. í fyrravetur, og hafa nálega engar breyt. verið gerðar á frv., nema 5. gr., sem minnzt er á hér í grg.

Frv. skýrir sig sjálft. Það miðar að því að draga nokkuð úr því, að auður þjóðarinnar sé lagður í óhæfilega stórar íbúðir, en þeir, sem þær byggja, skuli leggja á sig nokkra aukahúsaleigu, til þess að það sé hægara að koma upp húsum fyrir það unga, starfandi fólk í landinn, sem vantar hús. Eins og breyt. ber með sér, þá er þessi hækkun ekki tilfinnanleg fyrir þá, sem á annað borð hafa efni á að búa í slíkum húsum. Má þess vænta, að frv. verði vel tekið hér í hv. deild. Að lokinni umr. vildi ég óska, að frv. verði vísað til fjhn.