30.03.1933
Efri deild: 38. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 770 í C-deild Alþingistíðinda. (4884)
136. mál, háleiguskatt
Flm. (Jónas Jónsson):
Þetta frv. er mjög skylt hinu frv., sem ég mælti fyrir rétt áðan (um stóríbúðaskatt). Það lá líka fyrir hv. Nd. í fyrra, en náði ekki afgreiðslu. Það gerir ráð fyrir að gera að skattstofni happ þeirra manna, sem hafa byggt hús meðan ódýrt var, en njóta nú hárrar leigu, eða hafa keypt hús meðan þau voru að hækka og hafa fengið óeðlilega verðhækkun.
Af því að við vorum hér í gær að gera ráð fyrir, að ríkissjóður kynni að skaðast um 40-50 þús. króna á niðurfellingu útflutningsgjalda af landbúnaðarafurðum, þá kemur sér vel, að þetta frv. kemur í kjölfarið, því að hér er gert ráð fyrir tekjum ríkissjóði til handa, sem nema áreiðanlega meiru en sem svarar þessari niðurfellingu.
Ég geri fastlega ráð fyrir, að frv. þessu verði vel tekið. Vart getur hugsazt réttlátari gjaldstofn en hér er um að ræða, og allir þekkja þörf ríkissjóðs.
Ég geri að till. minni, að frv. verði vísað í fjhn.