08.03.1933
Efri deild: 19. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 675 í C-deild Alþingistíðinda. (4901)

74. mál, eignarnámsheimild á ábúðar- og erfðafesturétti

Bjarni Snæbjörnsson [óyfirl.]:

Hv. 5. landsk. lét þá skoðun sína í ljós, að bæjarstj. Hafnarfjarðar hefði fengið mig til að tala í þessu máli, en að Hafnfirðingum sé þetta ekkert áhugamál. Ég held nú, að sönnu muni næst, að hv. þm. hafi borið þetta mál fram til þess eins að fá tækifæri til að tala, en ekki af neinum áhuga fyrir Hafnfirðingum. Hv. þm. segir, að það sé af tómri öfundsýki og fleiri samskonar eiginleikum, að Hafnfirðingar séu að ásækjast land úr Garðahreppi. Hv. þm. er nú svo kunnur fyrir slíkt orðalag um land allt, að enginn kippir sér upp við að heyra slíkt frá hans munni. Með sama rétti mætti segja, að það væri ekki af umhyggju fyrir Garðahreppi, að Hermann Jónasson lögreglustjóri fékk land úr Garðalandi. Það var vitanlega af umhyggju fyrir lögreglustj., og engum öðrum. Þó hv. þm. haldi kl.tíma ræðu um þetta dag eftir dag, mun enginn fást til þess að samþ., að umhyggja fyrir Garðahreppi stjórni þeim ræðum. Ef svo hefði verið, þá hefði legið nær að skipta upp þessu landi handa kotum þeim, sem fyrir eru og hafa fulla þörf á þessu landi, svo lífvænlegt megi teljast á þeim. En umhyggjan kemur ekki fram vegna þessara fátæku bænda, heldur fyrir ríka manninum í Reykjavík. Og þótt Framsóknarfl. telji það á stefnuskrá sinni að styrkja fátæka bændur, þá er það nú ær og kýr hv. 5. landsk. að hafa hausavíxl á öllum hlutum, og vona ég, að enginn hv. þm. láti lengur af því blekkjast. Það er alveg víst, að bændurnir í Garðahreppi hafa ekki nóg land. En við Hafnf. segjum, að ef láta skal landið til manna utan hrepps hvort sem er, þá sé alveg sjálfsagt, að fátækir menn í Hafnarfirði fái það til ræktunar. Hv. þm. segir, að Garðhreppingar séu mótfallnir því, að Hafnarfj. fái þetta land. En þeir eru sannarlega ekki minna móti því, að einhverjir aðrir fái það. Þá kveður við sama tón hjá hv. þm. og gert hefir í Tímanum, að hér væri um lélegt land að ræða, lítt ræktanlegar mógrafir og þess háttar. En ef svo er, hví vill lögreglustjórinn þá ekki býtta á þessu landi og öðru, er hann getur fengið? - Honum hefir verið boðið heppilegt land í Digranesi, en það vill hann ekki. Þá endurtók hv. þm. það, að við Hafnf. hefðum hvorki hreyft legg né lið til að fá þetta land fyrr en nú, að við komum með þetta mál fyrir þingið. Ég hefi áður hrakið slíkt, og skal eigi endurtaka þá hlið málsins.

Nú kemur það fram hjá hv. þm., að eins og allir vissu, þá er eini tilgangurinn með þessu sá, að skaprauna Hafnf. og gera þeim sem mesta bölvun, því nú kemur hann með þær upplýsingar, að kennarafélagið sé búið að fá augastað á þessu landi. - Það er eins og hv. þm. sé sama, hver landið fær, bara að það sé ekki Hafnarfjörður. Er það sláandi dæmi um hugsunarhátt og fyrirhyggju hv. þm., að þegar hann verður hræddur um, að skjólstæðingur hans tapi mýrinni, þá finnur hann þetta upp. - Allt er, eftir hans hugarfari, betra en að fátæklingarnir í Hafnarf. fái landið. Hv. þm. tekst ekki að dylja úlfinn undir sauðargærunni.

Hv. þm. hefir oft sagt, að ég væri alveg ókunnugur þessum málum og vissi ekki neitt í þeim. Ég ætla nú ekki að skattyrðast um það. En hitt hefir tíðast komið fram, að ef nokkur maður hefir tamið sér að hafa hausavíxl á sannleika og lygi, þá er það hv. 5. landsk. Um það bera Alþtíð. honum órækt vitni bæði fyrr og síðar um hans þingmannstíð. Í sama dúr var það, að hv. þm. fór alveg rangt með það, er hann sagði um landbeiðni bóndasonarins á Hvaleyri. Land það, er hann bað um, er ekki á Hvaleyrinni, heldur ofan vegar, og auk þess hefir honum enn ekki verið neitað um þetta land. Að því landi standa þrír aðilar, því þarna er um óskipt land að ræða. Eru það Hvaleyrarbændur, bæjarstj. Hafnarfj. og Kollektusjóðurinn, en til þess þarf einnig samþ. stjórnar hans. Ég hefi sagt, og það hefir ekki verið hrakið, að Garðahreppur vill helzt fá allt það land, sem innan hreppsins liggur, til afnota fyrir sig. En fái utanhreppsmenn það, þá vilja þeir helzt, að Hafnarfj. fái það. Þetta hafa margir menn í Garðahr. látið í ljós við bæði mig og fleiri menn, ef mér verður ekki trúað. Hvað fjárhagsástæðum Garðahr. viðkemur, þá hefir oddviti þeirra tjáð mér það, að hreppurinn væri skuldlaus, og geta það varla talizt mjög slæmar ástæður. - Að vísu hefir mér láðst að fá skjalfest vottorð um þetta, eins og þó virðist þurfa til þess að mér verði trúað af hv. 5. landsk.

Læt ég svo útrætt um þetta mál. Ég býst ekki við, að neinar þær upplýsingar geti komið fram frá hv. 5. landsk. Ég hefi greinilega sýnt fram á það, af hvaða hvötum þetta mál er fram borið, að það er ekki gert vegna fátæklinga, heldur vegna ríka mannsins, lögreglustjórans hér - og svo vitanlega af fjandskap bæði við bæjarfélagið í Hafnarf. og við Garðahrepp. Ég tel víst, að um þetta mál fari eins og ýms önnur, sem þessi hv. þm. hefir borið fram, að það verði honum sjálfum til ævarandi skammar, og mun ég verða síðastur manna til að gráta það.