28.04.1933
Efri deild: 58. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 775 í C-deild Alþingistíðinda. (4908)
171. mál, innflutningur á kjarnfóðri o.fl.
Frsm. (Jón Jónsson):
Þetta frv. er flutt, eins og segir í grg., eftir ósk atvmrh., en er samið af hinni svokölluðu bændanefnd. Aðaltilgangur frv. er að stuðla að því að draga úr innflutningi á þeim vörum, sem hægt er að fá hér innanlands, m. ö. o. að bæta þjóðarbúskapinn sem þessu nemur. Hér er ekki um svo litla upphæð að ræða, eftir því sem skýrslur frá 1929-1931 sýna, því þá hefir meðalinnflutningur á útlendu kornfóðri numið ½ millj. kr. á ári, og er þó ekki talið með rúgmjöl, sem allt er notað með í þessu skyni. Nú hefir á þessum árum aukizt mjög ræktun á landinu, svo að til er meira en nóg hey til þess að koma þarna í staðinn. Það virðist því vera vel til fallið, a. m. k. meðan kreppan stendur yfir, að draga úr þessum innflutningi, sem hægt virðist að komast hjá og skapa þannig markað fyrir innlendar vörur, sem við svo sárþörfnumst fyrir. Í annan stað er svo mælt fyrir í 2. gr. frv., að fram skuli látin fara rannsókn á notagildi innlends kjarnfóðurs og áburðargildi síldarmjöls og beinamjöls. Þetta hvortveggja er mjög nauðsynlegt. Ýmsir halda því fram, að síldarmjöl sé allt að því eins vel fallið til ábúðar og bezta erlenda áburðartegundin, sem við fáum, „nitrophoska“. Og ef það kæmi í ljós við þessa tilraun, þá er mikið unnið. Þá er skapaður markaður fyrir þessa innlendu vöru og um leið fengju þeir ódýrari áburð, sem hann þyrftu að kaupa.
Að þessu athuguðu hefir n. ekki hikað við að flytja þetta frv. og væntir þess, að d. lofi því að ganga áfram.