28.04.1933
Efri deild: 58. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 776 í C-deild Alþingistíðinda. (4912)

171. mál, innflutningur á kjarnfóðri o.fl.

Jón Þorláksson:

Ég get ekki neitað því, að mér kemur þetta frv. ákaflega undarlega fyrir sjónir. Það má í fyrsta lagi vera vitað, að enginn maður fer að kaupa útlent kjarnfóður að óþörfu eða sér til skemmtunar. Útlent kjarnfóður er vitanlega ekki annað en efnivara til innlendrar iðnaðarframleiðslu. Það er réttilega gerð grein fyrir því í grg. frv., að útlent kjarnfóður, sem nú er keypt, fer að mestu leyti til mjólkurframleiðslu. Og þegar farið er fram á að banna eða takmarka innflutning á þessum vörum, þá get ég ekki skilið það öðruvísi en tilraun til þess að takmarka eða a. an. k. hefta aukningu á þeirri mjólkurframleiðslu, sem nú er og byggist á því að geta fengið þessa efnivöru. Nú gæti náttúrlega staðið svo á í landinu, að það væri sérstök ástæða til þess að beina landbúnaðinum inn á einhverja aðra braut, og gæti t. d. verið ástæða til þess, að löggjafarvaldið grípi þannig inn í að hindra aukna mjólkurframleiðslu, af því að hentara þætti að beina landbúnaðinum inn á aðra braut. Nú er vitanlega ekki nema um það eitt að ræða að auka kjötframleiðsluna. En finnst hv. þm. ástæða vera til, að löggjöfin leggi hindranir í veginn fyrir mjólkurframleiðsluna í því skyni að auka kindakjötsframleiðslu í landinu? Ég held, að umr. hér á þingi nú um önnur þingmál vísi fremur í öfuga átt.

Mér finnst þetta frv. því undarlegra sem það kemur greinilega fram bæði í grg. frv. og ummælum hæstv. atvmrh., að stj. hefir ekki hugmynd um, hvað hún ætlar að gera í þessu máli. Hæstv. ráðh. segir, að það eigi að rannsaka innlent kjarnfóður, og ef það kæmi í ljós, að hægt sé að nota það, t. d. til blöndunar, þá ætlar stj. að bregða á loft þeirri kylfu, sem frv. leggur henni í hendur. En gæti ekki verið skynsamlegra að bíða með slíkar hindranir, þangað til stj. er búin að gera þær rannsóknir, sem færðu henni einhverja skoðun um það, hvað hún vildi gera?

Mér finnst óþarfi að biðja löggjafarvaldið um þessa hindrun meðan ekki er vitað, hvort nokkurt vit verði í að nota hana. Það má líka minna á það, að innflutningur á útlendu kjarnfóðri er sú varúðarráðstöfun, sem við í þessu landi höfum helzt haft til að grípa til þess að verjast stórkostlegum áföllum frá náttúrunnar hendi í vorharðindum. Og gæti það ekki orðið varhugavert, ef einhver stj. af misskilinni umhyggju fyrir einhverju öðru, t. d. síldarútgerðarmönnum, sem þurfa að selja síldarmjöl, hefði takmarkað eða bannað innflutning á kjarnfóðri, svo að alvarlegur fóðurskortur yrði í landinu í vorharðindum?

Ég vil ennfremur minna á það, að þó sú stefna hafi verið mjög í uppsiglingu undanfarin ár, að leggja hindranir á viðskipti milli landa, þá er alveg greinilegt, að það er kominn afturkippur á þessu sviði, af því að stjórnmálamenn heimsins eru búnir að átta sig á því, að þessi stefna er vissasti vegurinn til eyðileggingar á allri efnalegri velgengni hjá þjóðunum. Millilandaverzlunin hefir færzt svo saman á undanförnum árum út af þessari hafta- og hindranastefnu, að allir sjá, að þetta horfir til viðvarandi vandræða í heiminum, ef ekki verður snúið við. Þess vegna er þegar hafizt handa um að nema slíkar hindranir í burt með milliþjóðasamningum og jafnvel alþjóðasamtökum. Þessa dagana hefir verið fullráðið að halda alþjóðasamkomu, sem einmitt fyrst og fremst á að reyna að koma fram ákvörðun í þessa átt.

Við hér í okkar utanríkismálanefnd höfum orðið varir við, að það verði settar hömlur við því, hvað langt við höldum áfram á þeirri braut að banna innflutning á vörum frá þjóðum, sem við viljum hafa vinsamleg viðskipti við. Þetta hefir þegar komið fram, og það mun koma meira fram. Ég tel þetta ekki sem stendur höfuðatriðið í sambandi við þetta frv. Höfuðatriðið er, að það beinist á móti aukinni innlendri framleiðslu með því að leggja á vald stj. að hefta innfl. á nauðsynlegum hráefnum til framleiðslunnar.

Ég ætla ekki að hafa á móti því, að frv. fari til 2. umr. og nánari athugunar, en ég vil mjög alvarlega vara við því að fara inn á þá braut að hindra bændur eða mjólkurframleiðendur í því að kaupa þá efnivöru, það fóður, sem þeir telja, að borgi sig bezt vegna mjólkurframleiðslunnar. Ég hygg, að þegar til lengdar lætur, þá verði reynsla þeirra gleggri dómari um það, hvað hentast sé í þessu efni, en álit nokkurs eins ráðh., jafnvel þó hann styðjist við till. einhverra manna utan síns ráðuneytis.

Ég þarf ekki að halda neinn fyrirlestur um það, að a. m. k. þeim, sem búa í þessum landshluta, veitist ákaflega erfitt að fá kýr til þess að gera svo gott gagn, sem þarf til þess að það borgi sig að halda þær, með því að gefa þeim eingöngu heyfóður.

Ég held þess vegna, að það sé ákaflega vafasamt, sem stendur í aths. þessa frv., að það væri af því auðsær vinningur, að það af heyfeng af ræktuðu landi, sem nú er gefið sauðfé, og af áveitulandi, sem þannig er notað eða deyr út, væri notað til mjólkurframleiðslu og kæmi þar að miklu leyti í stað hins aðkeypta kjarnfóðurs. Ég hygg, að sannleikurinn sé sá, að á stórum svæðum á landinu sé nauðsynlegt að geta átt kost á kjarnfóðri, til þess að gera þennan innlenda heyfeng arðberandi vegna mjólkurframleiðslunnar. Það er vonlaus búskapur orðinn, a. m. k. þar, sem ég er kunnugastur á landinu, og það er hér í nágrenninu, að ætla sér að halda margar kýr á heyfóðri og hafa um 2000 til 2400 l. mjólkur á ári. Hitt getur borgað sig, að hafa þær færri og gefa þeim betur. Með útlendu kjarnfóðri er hægt að drífa mjólkurmagnið upp í 3600 l. En það er alkunnugt, að með heyfóðri einu saman verður kýrnytin ekki nema 2000-2400 l., og sá búskapur borgar sig ekki.

Ég vona, að landbn. taki til alvarlegrar athugunar, hvort ástæða er til að leggja hindranir í veginn fyrir þessa atvinnugrein á þeim svæðum landsins, þar sem hún nú hentar betur en aukin sauðfjárrækt.