28.04.1933
Efri deild: 58. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 779 í C-deild Alþingistíðinda. (4913)

171. mál, innflutningur á kjarnfóðri o.fl.

Atvmrh. (Þorsteinn Briem):

Ég skal ekki koma neitt inn á þau atriði, sem hv. 1. landsk. (JónÞ) gat um í sambandi við millilandaverzlun heimsins, og þá bjartsýni, sem hann hafði í því efni, að allir væru farnir að sjá, í hvert óefni haftastefnurnar stefndu. Það má náttúrlega vera almenn ósk, að svo væri í raun og veru, því þá yrði okkur margt auðveldara. Og þó verð ég að ætla, að enn sé ekki komið að því, að þessi fróma ósk rætist. En viðvíkjandi því, sem hann sagði um þetta frv. sérstaklega, þá vildi ég gera nokkrar aths. Hann lagði mjög áherzlu á það, að þetta frv., ef að l. yrði, myndi hefta mjólkurframleiðsluna í landinu. Það var að skilja svo sem hann teldi, að útilokað væri, að hægt væri að auka mjólkurmagn kúnna á annan hátt en að nota til þess útlent kjarnfóður. Ég gat um það áðan, að það mundi vanta eitt efni í það innlenda kjarnfóður, til þess að hægt væri að notast við það eingöngu. En hinsvegar er allalmenn reynsla fyrir því, að kýr mjólka betur með því að nota að mestu leyti innlent kjarnfóður og blandað að nokkru leyti útlendu kjarnfóðri, heldur en að nota útlent kjarnfóður eingöngu. Þar sem hv. þm. talar um það, að bændur og mjólkurframleiðendur noti ekki útlent kjarnfóður að óþörfu eða sér til skemmtunar, þá get ég sagt honum það, að bændur hafa víða, vegna þeirra prédikana, sem uppi hafa verið um að auka mjólkurframleiðsluna með útlendu kjarnfóðri, blindandi keypt allt of mikið af þessari vöru og meira en mjólkurmarkaðurinn hefir þolað. Ég veit þess dæmi í einni sveit, sem flytur mjólk hingað til bæjarins, að fyrsta árið, sem sá mjólkurflutningur hófst, keyptu bændurnir svo mikið af útlendu kjarnfóðri, að mestallt verð mjólkurinnar fór til greiðslu á kjarnfóðrinu. Það munu margir bændur, sem hafa góða aðstöðu til að fóðra kýr sínar á heyi, hafa takmarkað kaup sín á útlendu kjarnfóðri síðastl. ár. (JónÞ: Og þurfti ekki l. til). Nei, vitanlega ekki, en reynslan hefir kennt þeim það.

En þetta frv. miðar að því, eins og ég gat um áðan, að enn meir verði takmarkaður innflutningur á útlendu kjarnfóðri, sem selt yrði óblandað hér innanlands, heldur notað í hæfilegum mæli til þess að blanda með því hið innlenda kjarnfóður, sem fyrir er. Ég býst við, að margir bændur hafi þá reynslu, að síldarmjöl og beinamjöl blandað nokkru af maís sé eins gott til mjólkur eins og olíukökur og annað útlent fóður, sem keypt er til landsins fyrir ærið fé.

Ég býst ekki við, að það þurfi að draga úr mjólkurframleiðslu bænda, þó að þeir noti meira hey til fóðurs og bæti það upp með innlendu kjarnfóðri í stað þeirra erlendu fóðurtegunda, sem nú eru mest notaðar. Þegar þarf að hafa allar gætur á þeim gjaldeyri, sem varið er til kaupa á nauðsynjavörum, þá er ekki ófyrirsynju, að einnig sé litið á þetta.

Hvað það snertir, að í harðæri sé það varnarráðstöfunin, að grípa til erlends kjarnfóðurs til að halda lífinu í fénaði, skal ég taka það fram, að þetta frv. kemur því máli ekki við, því að ef harðæri vofir yfir, mundu að sjálfsögðu verða veittar undanþágur frá ákvæðum þess. Þá er og á það að líta, að bændur hafa oft sett of ógætilega á, vegna þess að þeir treystu á kjarnfóðurskaupin, ef harðæri kæmi. Þeir hafa ekki sett á heyhlöðurnar, heldur á búðirnar. Reynslan frá 1920 bendir á, að slík kaup hafi ekki alltaf verið hagfelld, þar sem t. d. bændur í einu héraði keyptu erlendan fóðurbæti fyrir svo mikið verð, að stappaði nærri, að þeir þyrftu að selja mestallt kvikfé sitt til að borga kjarnfóðursskuldirnar. A. m. k. er það svo um hrossarækt og sauðfjárrækt, að hún getur ekki borið sig, nema þá á einstöku stað, með því að byggja verulega á erlendu kjarnfóðri.

Ég hygg því, að í frv. felist rétt hugsun og að sjálfsagt sé, að d. taki það til athugunar, og að n. gerði þá á frv. þær breyt., sem henni þættu nauðsynlegar.

Um einstök atriði frv. vil ég ekki ræða á þessu stigi málsins. Ég vænti þess, að n. athugi frv. nánar. Annars er frv. þetta flutt óbreytt eins og bændan. bjó það út, og aths. við það sömuleiðis.