28.04.1933
Efri deild: 58. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 785 í C-deild Alþingistíðinda. (4920)
171. mál, innflutningur á kjarnfóðri o.fl.
Magnús Torfason:
Ég ætla ekki að blanda mér í þau orðaskipti, sem orðið hafa um þetta mál á milli hæstv. atvmrh. og hv. 1. landsk. Hinsvegar kann ég ekki við, að ekki komi annað hljóð frá d. heldur en hnífilyrði í garð frv.
Ég verð að telja, að þetta frv. geti orðið að gagni, og það af því, að ég legg sérstaka áherzlu á 2. gr. frv. og þær rannsóknir, sem stj. á samkv. þeirri gr. að láta fara fram. Ég get hinsvegar ekki hugsað mér, að stj., hver sem hún er, detti í hug að beita því valdi, sem hér á að veita henni, til þess að banna innflutning á kjarnfóðri, fyrr en þessar rannsóknir hafa verið gerðar. Ég get ekki heldur hugsað mér, að stj. fari að takmarka innflutninginn svo, að hætta yrði á fóðurskorti í landinu. Ég hefi yfirleitt það traust til hverrar stj., að hún hagi sér eins og sæmilega skynsamur maður.
Við vitum, að kjarnfóðurkaup hafa oft verið gerð af litlu viti, ekki aðeins hvað það snertir, hvort þessi fóðurbætiskaup borguðu sig, heldur hafa menn oft keypt kjarnfóður án þess að vita, hvort það hafði þau efni inni að halda, sem helzt þurfti til að bæta upp það fóður, sent menn höfðu fyrir. Þess vegna er afarmikilsvert, að þetta sé rannsakað sem ýtarlegast, svo að unnt sé að leiðbeina þeim mönnum, sem fóðurbæti þurfa að kaupa. Þetta álít ég, að hljóti að vera aðalefni þessa frv. Það stendur líka í 4. gr., að 1. og 3. gr. gildi aðeins til 1. júlí 1935. M. ö. o. eiga þessi haftaákvæði aðeins að vera um stundarsakir til reynslu, ef á þarf að halda, en 2. gr. á að gilda ótakmarkaðan tíma.
Ég vil einnig geta þess, að það hafa komið fram raddir um að fara varlega í þessu efni. Það er ekki nema gott, að stj. viti það, að það tjáir ekki að fara hörðum höndum um þessi efni. Það verður ætið að hafa allan varann og láta reynsluna skera úr og fara eftir því, sem þeir álíta, sem þessum málum eru kunnugastir. Þá er áreiðanlegt, að þessi ákvæði verði að gagni, en engum til tjóns.