10.03.1933
Efri deild: 21. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 684 í C-deild Alþingistíðinda. (4928)

84. mál, verslunarnám og atvinnuréttindi verslunarmanna

Flm. (Jakob Möller):

Ég vil með leyfi hæstv. forseta nota þetta tækifæri til þess að gera grein fyrir tveimur þeim frv., sem hér eru á dagskrá og ég er flm. að. Ég flyt þessi frv. hér samkv. beiðni frá stéttarfélagi verzlunarmanna hér í Rvík og sambandsstjórn verzlunarfélaga á landinu. Frv. fara í þá átt að tryggja þeim, er afla sér verzlunarmenntunar, rétt til þess að öðru jöfnu að vinna þau störf, er þeir hafa lært, og sömuleiðis hitt, að verzlunarstörf vinni aðeins þeir, sem menntunar vegna eru til þess hæfir, og fara frv. þessi í sömu átt og lög þau, er á síðustu tímum hafa verið sett til þess að tryggja hliðstæð réttindi ýmsra annara stétta í landinu. Bæði þessi frv. hafa verið hér á ferðinni áður. Á síðasta þingi voru þau afgr. þannig, að þeim var vísað til stj. með tilmælum um, að hún léti athuga þau og undirbúa fyrir næsta þing. En úr þeirri athugun hefir ekkert orðið og flyt ég því bæði þessi frv. að ósk nefndra félaga. Ég vænti svo, að frv. fái góðar viðtökur og verði að umr. loknum vísað til 2. umr. og allshn., sem ég álít, að hafi haft þau til meðferðar áður.