03.05.1933
Efri deild: 62. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 795 í C-deild Alþingistíðinda. (4933)

171. mál, innflutningur á kjarnfóðri o.fl.

Atvmrh. (Þorsteinn Briem):

Hv. 4. landsk. þótti kenna hártogunar á því, sem mér hafði heyrzt úr bréfinu. En ég held, að dæmið hafi verið rétt, svo langt sem það náði. Ég sagði, að þetta væri a. m. k. ekki ljóst. En ég get bent á hártogun hjá hv. 4. landsk. Ég sagði, að ég teldi ekki æskilegt að banna erlendan fóðurbæti, nema reynslan sýndi, að við hefðum jafngóðan og jafnódýran innlendan fóðurbæti eða fóðurblöndu. En hann lét sem ég vildi banna erlendan fóðurbæti með öllu. Ef hægt er að fóðra sér til hagnaðar á fóðurbæti, sé ég ekki, að betra sé, að hann sé útlendur fremur en innlend blanda. Ég hefi heyrt bændur segja, að enginn fóðurbætir sé betri fyrir fé en síldarmjöl. Ég gæti trúað því, að það væri þá líka gott eintómt með haustbeit handa kúm. Hér er ekki farið fram á annað en að stj. fái heimild til að takmarka erlendan fóðurbæti, ef rannsóknir sýna, að innlendur fóðurbætir eða blanda af innlendum og erlendum sé jafngóð, og áherzla verður lögð á að finna innlend efni í stað hinna erlendu, t. d. kolvetna.

Hv. 4. landsk. sagði, að ef þetta frv. hefði verið borið fram á öðrum tíma, hefði það verið kallað hnefahögg við íslenzka bændur og lýsti vantrausti á þeim. Það er nú margt breytt frá því, sem var, og mætti þá alveg eins segja, að það lýsti vantrausti á kaupmönnum að takmarka við þá erlendan gjaldeyri. En ástæðan er auðvitað ekkert vantraust, heldur sú, að þetta er nauðsynlegt. Svo er og hér, að þessar takmarkanir eru æskilegar, ef ekki nauðsynlegar.