14.03.1933
Efri deild: 24. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 694 í C-deild Alþingistíðinda. (4957)
96. mál, eignarnámsheimild á nokkrum löndum og afnotarétti landsvæða í Hafnarfirði
Flm. (Jón Baldvinsson):
Það var rétt, sem hv. 6. landsk. rakti um starfsemi kvenfélagsins Hringsins í Kópavogi, og einnig það, að ríkið lét eftir fyrirmælum Alþingis félagið hafa umráð yfir þessari jörð, líklega árið 1924. Það er ekki nema lofsvert starf þessa félags, að hjálpa til við berklavarnirnar, en það verður bara ekki séð, að félagið hafi þörf fyrir miklu meira land en það hefir nú tekið til ræktunar, sem er aðeins 4,7 ha., að viðhættu meir en þrefaldri stærð af óræktuðu landi, sem frv. leggur til, að látið verði fylgja jörðinni ennfremur. Verður eigi séð af þeirri starfsemi, sem hingað til hefir þar verið rekin, annað en að land þetta hljóti fyllilega að nægja félaginu, og þó það hafi hug á því að reisa þarna barnahæli einhverntíma í framtíðinni, þá er nú eftir að vita, hvort það hæli er eins vel sett þarna eins og t. d. meir til sveitar. Það er trú mín, að meira verði úr ræktun, ef landinu er skipt í hæfilega stóra reiti handa mörgum einstaklingum, heldur en ef einn er látinn hafa umráð yfir stærðar landflæmi. Það þarf að skipta þessu landi milli eins margra manna og þar komast fyrir. Viðvíkjandi hjálp þessa félags við berklavarnirnar er rétt að geta þess, að félagið hefir byggt þetta hæli, en ég held ég megi fullyrða, að ríkið greiðir þar að mestu, ef ekki að öllu leyti dvalarkostnað sjúklinga. Það má segja, að ríkinu sé það skylt, en ríkið rekur þá líka þetta hæli, þó konurnar hafi komið því upp. Það er mín trú, að land þetta verði fleiri mönnum til gagns, ef það verður lagt undir bæjarfélagið, og ég treysti því, að hv. þm. bregði ekki fæti fyrir þetta mál, sem miðar að því að bæta úr atvinnuleysi í landinu.
Ég fæ ekki skilið, hvaða erindi hv. 2. þm. Árn. átti í pontuna. Ég sé ekki annað en hann sé mér nákvæmlega sammála. Hann tók sér fyrir hendur að segja ræktunarsögu Íslendinga og lýsti því, hvernig ræktuninni hefði miðað áfram stig af stigi, og komst svo loks að sömu niðurstöðu og ég, að eiginlega hefðu engar verulegar framkvæmdir orðið í jarðræktinni fyrr en á síðustu árum. Og þó ég minntist ekki á ræktunartilraun Hjörleifs landnámsmanns eða ristuspaðann, þá gat ég þess, að nokkrar undantekningar hefðu komið fram; þar sem viðleitni hefði verið sýnd á ýmsum tímum. En um landnámsmenn og yfirleitt bændur landsins fyrr á öldum er það að segja, að þeir munu jafnan hafa tekið meira af landinu heldur en þeir létu það hafa í staðinn. Enda eru sagnir um það, að fyrsta veturinn, sem hér var byggð. gáðu þeir ekki að afla heyja um sumarið, svo féð féll um veturinn. Það er upphaf horfellisins á Íslandi. En hv. 2. þm. Árn. er mér sammála um það, að stórfelldar jarðræktarframkvæmdir hefi ekki átt sér stað fyrr en á síðustu árum.
Ég viðurkenndi, eins og ég hefi tekið fram, að undantekningar væru til, þar sem komið hefði í ljós ræktunaráhugi, og á Vesturlandi voru það aðallega áhrif frá skólanum í Ólafsdal, sem breiddust út samhliða ristuspaðanum. Þá tóku menn fyrir nokkrar skákir og ristu, en þessar framkvæmdir voru ákaflega ófullkomnar, og sléttunin, sem framkvæmd var af vanþekkingu, entist ekki nema nokkur ár; þá fóru þúfurnar að gera vart við sig aftur. Auk þess tóku menn ekki það land, sem bezt var fallið til ræktunarinnar, heldur sléttuðu menn sem næst bæjunum í túnunum sjálfum. Menn þekktu þá ekki þær aðferðir, sem fljótvirkastar voru á því sviði, t. d. var þá sáralítið girt af engjum, heldur voru það aðallega nátthagar, sem girtir voru. Einn þátt jarðræktarinnar, sem gamall er með þjóðinni, hefði hv. þm. getað minnzt á, en það er „færikvíaræktunin“, en hann nefndi hana ekki.
Þessi smáatriði, sem hv. 2. þm. Árn. var að tína til í ræðu sinni, eru svo veigalítil og lítið viðkomandi þessu máli, að fyrir þeim getum við hv. þm. verið alveg sammála. Það var alveg óþarft af honum að halda því fram, og alveg rangt, að ég hefði í fyrri ræðu minni borið bændum á brýn ódugnað og áhugaleysi. Ég hygg, að ég hafi sýnt það undanfarið hér á Alþingi, að ég viðurkenni bændur og skil þarfir þeirra engu síður en hv. 2. þm. Árn.