14.03.1933
Efri deild: 24. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 697 í C-deild Alþingistíðinda. (4959)
96. mál, eignarnámsheimild á nokkrum löndum og afnotarétti landsvæða í Hafnarfirði
Magnús Torfason:
Ég þarf ekki að svara hv. 2. landsk. mörgum orðum. En mér þykir varlegra að slá því föstu; að í síðari ræðu sinni reyndi hv. 2. landsk. ekki að halda því fram, að áhugi bænda fyrir jarðrækt hefði ekki vaknað svo nokkru nemi fyrr en á síðustu árum. Með því hefir hann samþ. hvað ég sagði um þetta mál. En ég get hinsvegar skilið, að framhjá honum hafi farið sá almenni áhugi bænda á jarðrækt, sem verið hefir síðan þessi hv. þm. komst til vits og ára, enda er hann frá plássi, sem mjög illa er lagað til ræktunar, og jarðabætur þar hafa ekki byrjað fyrir alvöru fyrr en á síðustu árum.
Hv. þm. minntist á horfellinn, sennilega af velvild til íslenzkra bænda, en hann kom með mjög óheppilegt dæmi. Ég veit ekki betur en að menningarþjóðirnar hafi farið um allan heim til veiðifanga og rána, bæði um byggð og óbyggð lönd, og eyðilagt þá björg, sem þar var fyrir. Og það er ómögulegt að sjá nokkurt samband milli þess, að hingað kom maður úr öðru landi, sem ekki kunni að búa, og horfellis íslenzkra bænda á síðari öldum. Annars skil ég ekki í því, að þessi ádeila á horfellinn skuli koma frá eins vitrum manni og hv. 2. landsk., sem farið hefir um allt land og margt séð og lesið. Horfellirinn var fullkomlega eðlilegt fyrirbæri, þegar það er athugað, að innanlands var enginn markaður fyrir kjöt, bændur skáru í bú sín og reyndu svo að setja eins mikið á og mögulegt var. Þá fylgdu bændurnir því gamla lögmáli, að eftir illt sumar kæmi góður vetur. Þetta lögmál hefir fundið fulla stoð sína í rannsóknum nútíma vísindamanna á eðli flóastraumsins. Þó getur brugðið út af þessu, þegar hörkurnar norðan frá Síberíu og Gandvík verða óvenju skæðar.
Ég held, að hv. 2. landsk. hafi ekki komið auga á það böl, sem samgönguleysið hefir verið oss Íslendingum. En enginn vafi getur á því leikið að horfellirinn stafar af þessu tvennu, markaðsleysi og samgönguskorti. Hér hefir verið ómögulegt að útvega sér fóðurbæti eða aðrar bjargir, þótt líf manna og dýra hafi legið við. Og ég hélt, að ekki þyrfti að vera að brýna bændur með þessu lengur. Hordauðinn er úr sögunni; sú kynslóð, sem nú lifir, hefir sigrazt á honum. Með því hefir hún bætt fyrir afbrot forfeðra vorra á þessu sviði, og á margfaldar þakkir skilið fyrir það verk, en ekki það, að verið sé að brýna íslenzka bændur með 1000 ára gömlum sögum, eins og hv. 2. landsk. lét sér sæma.