14.03.1933
Efri deild: 24. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 700 í C-deild Alþingistíðinda. (4963)

96. mál, eignarnámsheimild á nokkrum löndum og afnotarétti landsvæða í Hafnarfirði

Flm. (Jón Baldvinsson):

Þessu frv. hefir eiginlega ekki verið andæft neitt, nema lítillega af hv. 6. landsk. Beztu meðmælin hafa komið frá hv. 2. þm. Árn., þar sem hann benti á, að mest væri ræktað á jörðum, sem gætu notað áburð úr sjónum. En nú er þetta einmitt tilfellið með þessar landspildur, sem hér um ræðir, og má búast við, að ræktun gangi þar fljótt og vel, ef þær verða lagðar undir Hafnarfjarðarkaupstað.