17.03.1933
Efri deild: 27. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 731 í C-deild Alþingistíðinda. (4976)

103. mál, æðsta dóm

Flm. (Jón Jónsson):

Ég hefi leyft mér að bera fram frv. þetta í þeim tilgangi að búa betur um æðsta dómstól þjóðarinnar en nú er gert, og um leið að tryggja réttaröryggið í landinu.

Það má eflaust segja með nokkrum sanni, að þetta sé ofdirfska af mér, ólöglærðum bónda, en þar sem svo heppilega vildi til, að tveir mjög mætir lögfræðingar, sem jafnframt eru þaulæfðir dómarar, féllust á aðalbreyt. þær, er fyrir mér vöktu um löggjöf dómstólsins, og veittu mér jafnframt óskorað lið við að koma þeim í frv.form, þá hikaði ég ekki við að bera þær fram fyrir Alþingi og alþjóð manna.

Þar sem frv. þetta er þannig samið með aðstoð þessara tveggja mætu manna, treysti ég því, að það sé sæmilega úr garði gert. Jafnframt skal þess getið, að hv. 2. þm. Árn., sem er elzti lögfræðingur þingsins, gerði mér og þann mikla greiða að lesa frv. yfir í handriti. Hvatti hann mig og til þess að flytja það. Þá hafa og allmargir flokksbræður mínir, bæði innan þings og utan, er séð hafa frv., hvatt mig til hins sama.

Aðalástæðan fyrir framkomu frv. þessa er sú, að ég tel æðsta dómstól okkar, eins og hann nú er skipaður, tæplega nógu sterkan á þeim umbrota- og ofsatímum, sem nú ganga yfir heiminn, og okkur að nokkru leyti líka. Það koma oft mjög viðkvæm mál fyrir dómstólana, ekki sízt á slíkum tímum, sem orkað getur tvímælis, hvernig dæma skuli. Er þá sízt spöruð ofstækisfull gagnrýni, því jafnvel lætt inn hjá fólki, að á dómstólunum sé ekkert að byggja, þeir séu flokksdómstólar eða stéttadómstólar. Undir slíkum kringumstæðum ríður mjög á því, að a. m. k. æðsti dómstóllinn sé nægilega sterkur. Eins og kunnugt er, hefir staðið að undanförnu allmikill styr um dómstólana hér á landi, jafnvel æðri sem lægri, þó yfir hafi þó tekið um hæstarétt. Af slíkum árásum, sem verið hafa á dómstólana hjá okkur, tel ég beinlínis, að stafað geti hinn mesti háski. Mér virðist það því skylda löggjafarvaldsins að gera allt, sem í þess valdi stendur, til að búa svo um þá, að slíkar árásir geti helzt ekki átt sér stað. Þó að löggjafarvaldið geti gert mikið í þessu efni, þá er það að sjálfsögðu ekki að öllu leyti á valdi þess að tryggja álit dómstólanna og koma í veg fyrir óréttmætan hávaða um þá. Dómararnir sjálfir verða að vanda sína framkomu í hvívetna, koma sem virðulegast fram, og væri mjög æskilegt, að allir dómarar, jafnt æðri sem lægri, tækju sem allra minnstan þátt í stjórnmálum eða héraðsmálum. Blöðin og einstakir borgarar verða og að gæta þess að sýna dómstólunum fulla sanngirni. Róleg, rökstudd gagnrýni, þar sem málin eru rædd með fullri sanngirni, er fyllilega réttmæt. Hinu ber að gjalda varhuga við, að vera með ofstækisfullar og óbilgjarnar árásir á dómstólana. „Það er þegnskylda að þola lög, þó að móti gangi“. Löggjöfin má því ekki játa sitt eftir liggja, þó að hún ein geti ekki tryggt dómstólunum traust og vinnufrið.

Að sjálfsögðu má með löggjöf gera ýmsar endurbætur á dómstólunum, og skiptir þá mestu um æðsta dómstigið. Kemur þá fyrst til athugunar, að vel sé búið um skipun í dómaraembættin, og á því, að vel takist val dómaranna, veltur allt réttaröryggi í landinu. Það virðist því vera nokkuð mikil áhætta að leggja slíkt veitingarvald með öllu í hendur eins manns. Hér er því lagt til, að allir ráðherrarnir hafi atkv. um veitinguna, og að mesti trúnaðarmaður þjóðarinnar, forseti ráðuneytisins, beri ábyrgð á henni. Það gat og komið til mála að fela einhverri ópólitískri stofnun veitinguna, en vandkvæði eru þó á því.

Þá getur það verið álitamál, hversu margir eigi að skipa dóminn. Það ætti ekki að orka tvímælis, að líkur væru fyrir því, að málin yrðu þeim mun betur athuguð, sem fleiri skipuðu dóminn. Þau yrðu rædd og athuguð frá fleiri hliðum. Hér er því lagt til að fjölga dómurum frá því, sem þeir eru nú í hæstarétti. Annars verður tæplega annað sagt en að teflt hafi verið á tæpasta vaðið, að hafa aðeins þrjá. Ef rakin er þingsagan alla tíð frá miðri síðustu öld, kemur það berlega í ljós, að allir okkar mætustu menn hafa talið æðsta innanlandsdómstólinn of veikan, allt hvað hann var ekki skipaður 5 dómendum. Um þetta atriði farast lögmanninum í Reykjavík svo orð í ritgerð í tímariti lögfræðinga og hagfræðinga 1924:

„Þetta álit, að efra og úrslitadómstigið sé of veikt, skipað aðeins þrem mönnum, er ekki nein hverful hugarhræring, stundar geðbrigði eða staðlaus hjátrú fáeinna manna. Nei, það er rótgróin skoðun, bjargföst sannfæring, óhvikul vissa lærðra sem leikra, ólöglærðra sem löglærðra, kynslóð eftir kynslóð. Þetta byggist vitanlega á því, að þess öruggari sé dómsniðurstaðan, sem fleiri lærðir og vitrir menn gjalda henni samkvæði, en þó fullt svo mikið á þeim raungæfa sannleika, að þessir góðu menn geta haft býsna mismunandi skoðanir um, hver úrslit máls og dómur eigi að vera. Í nefndardómstóli ræður meiri hlutinn dómi. Dómstólarnir eiga að dæma eftir lögunum og ennfremur að ákveða, hver eru lög í landi um það atriði, sem fyrir liggur. Dómsúrslitin velta þá á því, hvað þessi meiri hl. telur lög og rétt. Ágreiningur milli dómenda máls um úrslit þess leiða óhjákvæmilega til efasemda um réttmæti úrslitanna, fyrst og fremst hjá þeim málsaðila, sem undir verður, og ef til vill hjá almenningi, ef um þess háttar mál er að ræða, sem hann lætur til sín taka. Mönnum verður það fyrir að líta á dóminn og málsúrslitin öllu heldur sem valdboð eða skipun hins sterkara - að vísu byggða á lagagrundvelli -, en sem öruggustu og réttustu úrlausn málsins. Það er ekki alveg nóg, að dæmt sé rétt, heldur þarf því að vera samfara, að þeir, sem við dómstólana eiga að búa, trúi því og treysti, að dómar hans séu réttir. Dómaskipun allra menningarþjóða hefir því haft það markmið, ekki aðeins að tryggja sem bezt réttdæmi dómstólanna, heldur að efla traust almennings til þeirra, og sérstaklega til þess, að því mætti fyllilega treysta, að næg væri trygging fyrir réttum dómi á úrslitadómstiginu. Og til þess að ná þessu tvöfalda markmiði er höfð sú meginregla, að efra dómstigið er ekki aðeins styrkara en hið óæðra að mannvali, heldur og að manntali“.

Hvað snertir starfsaðferð dómsins, þá virðist fyllilega réttmætt að fyrirskipa opinbera atkvæðagreiðslu í honum. Má það fyrst og fremst vera lærdómsríkt fyrir menn utan dómsins, og ennfremur ætti það að vera dómendunum hvöt til vandvirkni. Þar sem allir virðast vera á einu máli um þetta atriði, skal ég ekki fara fleiri orðum um það nú. Það skiptir að sjálfsögðu miklu máli, að dómaraefni æðsta dómstólsins hafi fengið sem mesta æfingu í dómarastörfum. Þó hefir svo einkennilega viljað til, að löggjöfin hefir ekki talið þá menn koma til greina til þess að taka sæti í æðsta dómstólnum, sem fá einna mesta æfingu í dómarastörfum hjá okkur. Það eru fulltrúar lögreglustjóra og lögmannsins í Reykjavík. Það eru menn, sem dæma fleiri dóma en flestir aðrir, og gera það undir leiðsögn einhverra hinna færustu og æfðustu dómara. Úr þessum ágalla er bætt í frv. þessu.

Við samning frv. þótti sjálfsagt að sameina í einn lagabálk öll lög, er varða æðsta dómstólinn. Voru því ákvæðin um varadómara felld inn í það, en jafnframt þótti rétt að breyta þeim ákvæðum allverulega. Eftir núgildandi lögum eru kennarar lagadeildar háskólans sjálfkjörnir varadómarar. Það ákvæði virðist nokkuð vafasamt. Það er nefnil. engin trygging fyrir því, enda þótt kennararnir séu mjög vel færir í sínu starfi, að þeir séu vel fallnir til þess að vera dómarar. Þeir geta t. d. verið reynslulitlir unglingar. Það virðist því fullt svo vel til fallið, að varadómararnir séu skipaðir til hæfilega langs tíma í einu.

Þá skal ég að síðustu fara nokkrum orðum um nafn dómstólsins. Orðið hæstiréttur er tæplega málfræðilega rétt. Orðið „réttur“ mun að fornu frekar tákna lög en dóm, sbr. t. d. kristniréttur. En er til þess kemur að finna annað heiti á dómstólinn, vandast málið, því að vart finnast tveir menn, sem eru sammála um það. Á undanförnum árum hefir verið stungið upp á orðinu fimmtardómur. Það hefir það til síns ágætis, að það var til í fornmálinu og er liðugt í munni, en enginn frægðarljómi stendur af fimmtardóminum forna. Hann virðist hafa verið stofnaður af hálfgerðri undirhyggju, og átti helzt að fást við leiðindamál. Nafn þetta gæti þó átt allvel við dómstól þennan eins og hann er hugsaður hér, skipaður 5 mönnum, en breytist tala dómendanna, er nafnið óhafandi. Nú má vel vera, að tala dómendanna breytist er stundir líða, og er þá ekki viðeigandi að vera að hringla með nafn æðsta dómstólsins. Hér er því tekið upp heiti á dómnum, sem einn okkar mesti íslenzkumaður notaði á sinni tíð. En annars er ég fús til samkomulags um hvert almennilegt heiti á dómnum. Mér þykir aðeins leitt að vera að hringla með nafn æðsta dómstólsins.

Ég get vel búizt við, að það, sem helzt verður haft á móti þessu máli, verði kostnaðaraukinn, sem af því leiðir fyrir ríkissjóðinn. Það er að sjálfsögðu ástæða til þess að athuga þá hlið málsins. En eins og ég hefi bent á í grg. frv., þá verður kostnaðaraukinn tæplega svo mikill, að í hann sé horfandi og hann eigi að ráða úrslitum málsins, þegar annarsvegar er um það að ræða að tryggja réttaröryggið í landinu.

Það virðist töluvert einkennileg tilviljun, að frv. þetta skuli flutt á Alþingi á 100 ára dánarafmæli Magnúsar konferensráðs Stephensens, þess manns, sem tvímælalaust hefir markað merkast spor allra einstakra manna í sögu dómstólanna íslenzku, að Þórði Gelli undanteknum.

Stofnun landsyfirdómsins var afarmikil réttarbót. Nú áttu 3 færustu lögfræðingar að fjalla um dómsúrskurð mála í góðu tómi í stað flaustursverkanna á Þingvöllum síðustu árin.

Það hefir hlotið að vera geysimikil réttarbót þess mæta manns, sem þetta þrekvirki vann að koma á fót landsyfirdóminum og stjórna honum með skörungsskap fyrsta þriðjung aldarinnar. Gæti Alþingi ekki minnzt á betri hátt en með því að setja á þessu ári sem myndarlegasta löggjöf til að efla æðsta dómstól landsins og tryggja þannig, sem mest og bezt réttaröryggi þjóðarinnar.

Með þeirri einlægu ósk, að þetta megi takast, læt ég máli mínu lokið.