17.03.1933
Efri deild: 27. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 748 í C-deild Alþingistíðinda. (4980)
103. mál, æðsta dóm
Jón Baldvinsson:
Fyrir undanförnum þingum hafa legið frv. til breytinga á hæstarétti, sem hv. 5. landsk. hefir beitt sér sérstaklega fyrir, og hann flytur nú og hefir flutt á undanförnum þingum. Það frv., sem hér er til umr. á eftir, sem er til allverulegra breytinga á dómsfyrirkomulagi og fyrirkomulagi hæstaréttar mundi, ef að lögum hefði orðið, vera allveruleg breyt. til góðs. Við Alþflmenn lýstum því yfir, að við mundum fylgja frv., af því að það mundi hræra ofurlítið upp í hinu gamla íhaldshreiðri, hæstarétti. Enda þótt það væri fyrirfram vitanlegt, að dómsmrh. hefði ekki veitt öðrum en framsóknarlögfræðingum embættin, þá hefði það kannske orðið eitthvað skárra, og hugsanlegt er, að framsóknarmenn, sem hafa minni hagsmuna að gæta í bæjunum, mundu ef til vill líta með meiri sanngirni, þó ég þori ekki að fullyrða það, á mál, sem yrðu á milli Alþflmanna annarsvegar og íhaldsmanna hinsvegar, sem þráfaldlega koma fyrir, sérstaklega pólitísk mál. Við töldum a. m. k. nokkra bót að því að samþ. það. Hv. 5. landsk. hefir sennilega fyrir klaufaskap ekki getað unnið því fylgi í sínum flokki, því að alltaf hafa einhverjir flokksmenn hans skorizt úr leik. Það hlýtur frekar að vera að kenna hans klaufaskap en að hann á sínum velmagtarárum hefði ekki getað komið frv. fram. Sennilega er nú liðinn sá tími, og nú eru andstæðingar hans innan Framsfl. teknir við völdunum, og nú flytja þeir frv. til breyt. á hæstarétti.
Þetta frv. hv. 3. landsk. um æðsta dóm er, eins og maður hefði getað ímyndað sér, að svörtustu íhaldsmenn hefðu borið fram. Það á að tryggja það, að það fyrirkomulag á hæstarétti haldist, og sérstaklega það, að dómararnir verði áfram úr sama flokki. Ég vil ekki bera hv. þm. og flokksmönnum hans það á brýn, að þetta sé aðaltilgangurinn, en maður getur trúað því, að tilgangurinn sé að koma í framkvæmd gömlum draum hjá sumum framsóknarmönnum, sem nú mundi falla í góðan jarðveg hjá allmörgum sjálfstæðismönnum. Ef nú þetta verður samþ. og bætt við mönnum í hæstarétt, eða „æðsta dóm“, eins og hann heitir eftir till. hv. flm., þá væri opnuð leið til að framkvæma þessa fyrirætlun, sem maður hefir einstaka sinnum heyrt hjá framsóknarmönnum, því að með samþykkt þessa frv. er tryggð samvinna á milli flokkanna, og þá gæti sá draumur rætzt, að losna við Magnús Guðmundsson sem dómsmrh. og setja hann í hæstarétt.
Þetta gæti orðið að veruleika, ef frv. verður samþ., og þá er hægt að uppfylla ósk hv. þm. G.-K. að taka aftur sæti í stjórn Ásgeirs Ásgeirssonar. (MT: Langar ekki fleiri til þess?). Ég veit ekki um hv. 2. þm. Árn., hvort hann kemur til greina í þessu sambandi. Ummæli, sem féllu á þingmálafundi í haust hjá hv. þm. G.-K., benda í þá átt, að eitthvað hafi verið fyrirhugað um þetta, en þetta var meðan hann var dómsmrh. Hann sagðist þá víkja úr sæti, og við tæki sá, sem var á undan honum, en hann gaf til kynna, að hann mundi nú bráðum koma aftur.
Þegar búið er að samþ. þetta frv. og koma þeirri uppástungu í framkvæmd, sem ég hefi skýrt frá, að vakað hafi fyrir sumum, þá er tryggð talsvert sterkari samvinna milli þessara tveggja flokka, Íhalds og Framsóknar, en hefir verið, og auk þess getur Framsókn gert sér vonir um þingsæti í Skagafirði, en það skiptir að vísu ekki miklu máli eftir að böndin eru treyst á milli flokkanna.
Það eina, sem er nýtilegt í þessu frv., er fjölgunin. Ég hefi alltaf haft þá skoðun, að það væri betra að hafa 5 menn í dómi en 3. Að öðru leyti er rækilega séð fyrir, að ekki komist í dóminn ungir lögfræðingar, heldur á bara að hleypa inn gömlum og uppþornuðum juristum. Það á sem sé að gera dóminn að forngripasafni, sem svo á að heita æðsti dómur!
Það hefði verið sök sér, ef einhverjir þeirra manna hefðu komizt þar inn, sem hefðu verið í einhverju samræmi við þær hugmyndir, sem nú eru uppi, en það virðist svo, að flestir þeir dómarar, sem nú gætu komið þar til greina, séu leifar frá hinni öldinni, menn, sem gera sér hugmyndir á allt annan veg um réttarfar en ýmsir hinir yngri lögfræðingar.
Ég ætla því nú þegar við þessa umr. að greiða atkv. á móti frv. Ég sé enga ástæðu til að leggja það til grundvallar við athugun um breytingar á hæstarétti, sökum þess að það gengur allt í íhaldsáttina.
Hv. flm. hefir í grg. sinni fyrir frv. ofurlítið vikið að því, hvers trausts rétturinn mun nú njóta hjá þjóðinni. Fer ég ekki mikið inn á það. En það er eitt, sem hv. þm. sagði í sinni framsöguræðu, sem ég tel, að sé rétt að komi fram, úr því hann, sem hafði raunar talað í hálfum hljóðum um hæstarétt eins og hann væri heilög stofnun, minntist á það. Hann talaði um, að framkoma dómaranna þyrfti að vera virðuleg og þá mátti renna grun í, að honum hefði ekki alltaf fundizt virðuleg framkoma þeirra. Hann hefir sennilega haft í huga ummæli, sem höfð eru eftir einum dómara hæstaréttar, sem sagði, að rétt væri að skera höfuðin af öllum mönnum í heilum stjórnmálaflokki. Þetta hefir hv. flm. ekki þótt virðuleg framkoma af manni, sem skipaði dómarasæti í æðsta dómstóli þjóðarinnar. Ég ætla að taka fram, til þess að fyrirbyggja misskilning, að þessi maður átti ekki við kommúnista með þessum ummælum, því að þeir eru að nokkru samstarfsmenn hins svartasta íhalds. Ég vil ennfremur taka fram, út af því, að hv. 5. landsk., sem er talsvert næmur á það, sem hrærist meðal fólksins, segja honum það til hróss, að hann hefir fyrir löngu fundið, að almenningur hefir verið óánægður með hæstarétt, og hefir þess vegna komið fram með breyt. á honum. Ég geri ráð fyrir, að það sé rétt, að hann hafi fylgi meiri hl. þjóðarinnar til að koma fram þeim breyt., og það er af því, að það er svo mikil óánægja með réttinn og ýmsa dóma, sem hann hefir kveðið upp.
Ég vil aðeins geta þess, að það er talsverður uggur í ýmsum frjálslyndum mönnum yfir því, og þeir telja, að það hafi hættuleg áhrif, að í málunum, sem hafin voru út af viðburðunum 9. nóv. í haust, eru undantekningarlaust öll vitnin gegn hinum ákærðu starfandi og áberandi íhaldsmenn. Þetta hefir vakið ótta um það, að þegar til hæstaréttar kemur, muni tekið meira tillit til framburðar íhaldsmanna en annara, og kunni það að hafa áhrif á dómsúrslit. Svona er nú trúin á hæstarétt. Það er því ekki að undra, þótt uppi séu till. um að gera breytingar á dóminum. Ég ætla ekki að fara neitt út í það heiti, sem er á dóminum. Hv. flm. hefir valið það, og þarf það ekki að skipta miklu máli, hvað dómurinn er nefndur, ef það er skemmtilegt og gott mál. En innihaldið skiptir mestu. Það er ekki að mínum dómi, að nafnið skipti neinu, og ekki ætla ég að gagnrýna það málfræðilega, þó að sýnzt gæti, að það sé, ef talað er út frá sjónarmiði biskupsins, sem hv. 5. landsk. blandaði inn í, að það væri að leggja nafn guðs við hégóma, að nota það um hæstarétt. Ég mun nú þegar greiða atkv. á móti því, að frv. fari til 2. umr. Álit ekki ástæðu til að tefja þingið með umr. um þetta frv., og betra að snúa sér að þeim aðkallandi málum, sem bíða úrlausnar þingsins; því ekki sýnist hægt að fá viðunandi lausn nú.