17.03.1933
Efri deild: 27. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 758 í C-deild Alþingistíðinda. (4983)
103. mál, æðsta dóm
Dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):
Út af því, sem hv. 5. landsk. sagði, vil ég segja fáein orð.
Þeir, sem heyrt hafa þennan hv. þm. halda ræður hér á Alþ., mundu hafa orðið hissa á því, ef hann hefði ekki nefnt Mgbl. eða „íhaldsblöðin“ eins og hann orðar það. Menn hefðu undrazt, ef hann hefði getað haldið heila ræðu án þess að minnast á þessi blöð. En nú kom það: Hv. þm. er svo gerður, að hann er hræddur um, að allir séu íhaldsmenn, hann flokksmenn líka, ef þeir eru honum ekki sammála í einu og öllu. Þetta sést bezt á því, að hv. þm. brigzlar flokksmanni sínum, flm. þessa frv., um, að hann hafi gengið erindi hins svartasta íhalds með því að bera þetta mál fram. Ég vil í sambandi við þetta staðfesta það, sem hv. flm. sagði, að hann hefir á engan hátt borið sig saman við mig um samningu eða flutning þessa frv. Ég fékk fyrst vitneskju héðan af skrifstofunni um, að frv. þetta væri á ferðinni. Vissi ekkert um það fyrr. Hv. 5. landsk. verður því að vega að sínum eigin flokksmanni, ef hann vill vega í knérunn einhvers út af þessu frv. Og það kemur mér vitanlega ekkert við, þótt hann rægi sinn flokksbróður. - En þar sem frv. þetta er svo áþekkt frv., sem hv. 5. landsk. vildi sjálfur koma fram á síðasta þingi, þá ætti hann ekki að taka svona sterklega til orða um þetta frv., nema þá að hann hafi skipt um skoðun síðan. En sé svo, væri þá ekki rétt fyrir hv. þm. að bíða nokkuð lengur, ef vera mætti, að hann skipti enn um skoðun?
Um Lárus H. Bjarnason er það að segja, að það er til skjal í stjórnarráðinu, sem sýnir það og sannar, að hann var látinn sleppa embætti sínu þvert á móti vilja sínum. Það er einnig rétt, að hann komst til góðrar heilsu. En hann vildi samt ekki taka sæti aftur í hæstarétti. Og það var af því, að hann óttaðist það, að ef óbilgjarn maður kæmist aftur til valda, þá mætti búast við, að hann yrði strax aftur að hverfa frá embætti sínu. Reyndar taldi hann engar líkur til þess, að hv. 5. landsk. eða neinn annar jafningi hans að óbilgirni kæmist aftur að. En hann vildi þó ekkert eiga á hættu, þótti gott að vera án ábyrgðar og embættis, en halda þó fullum launum.
Þá var hv. 5. landsk. að ámæla mér fyrir veitinguna á því dómaraembætti, er var laust, þegar hann kvaddi stjórnarstörfin. Ég veit þó ekki betur en að hv. 5. landsk. hafi verið ánægður með suma þá dóma, er sá maður hefir dæmt. En spyrja má: Hversvegna skipaði hv. 5. landsk. ekki í þetta dómarasæti meðan hann hafði aðstöðu til þess? Var það máske af því, að hv. 5. landsk. fann engan þann flokksmann sinn, sem fær var um að fylla þetta sæti? - Það er öllum vitanlegt, að þeim mönnum fer mjög fækkandi, er treysta hv. 5. landsk. Og benda má á það, að tveir lögfræðingar, sem hann þó áður treysti, hafa unnið að undirbúningi þessa frv., sem hv. þm. telur nú óalandi og óferjandi.
En fyrst nú sú veiting í dómarasætið, sem ég framkvæmdi, er að áliti hv. þm. alveg ómöguleg, þá ætti hann að vera glaður yfir því, að breytt er um fyrirkomulag á veitingu dómaranna framvegis. En svo er þó sjáanlega ekki. Það er eins og það gægist fram hjá hv. þm., að hann gruni um flokkssvik af hálfu þeirra manna, er nú sitja í stjórn sem fulltrúar Framsfl. Hann um það. En ég vil minna á, að ekki verður alltaf sú stj. við völd, er nú situr. Og ég fyrir mitt leyti hefi ekkert á móti því, þótt skipun í æðsta dómstólinn sé framkvæmd á virðulegri hátt en aðrar veitingar, með því að ráðherrafundur samþ. og forsrh. beri till. fundarins fram fyrir konung. Ég legg ekkert upp úr því valdaráni frá dómsmrh., sem hv. 5. landsk. telur þetta vera. Ég veit, að hv. 5. landsk., sem er fíkinn í völd, sá mjög eftir þessu og var sár yfir slíkri till., er hún kom fram. En ég fyrir mitt leyti sé ekkert eftir þessu.
Hv. 5. landsk. talaði um það, hve fljótt hv. flm. hefði spillzt eftir að hann kom hingað heiman úr sveit sinni. Þetta er nú anzi leiður dómur fyrir þá, sem alltaf eru í Reykjavík, eins og t. d. er um okkur hv. 5. landsk. Það má nærri geta, hvernig við erum orðnir, fyrst hv. flm. er orðinn svona afleitur eftir mánaðardvöl hér!